Allt frá grunni að góðu heimili síðan 1956
Húsasmiðjan á sér yfir hálfrar aldar langa viðskiptasögu á Íslandi og er í dag eitt af stærstu fyrirtækjum landsins. Húsasmiðjan veitir Íslendingum alhliða þjónustu á byggingavörumarkaði og starfsemi hennar nær til landsins alls.
Verslanir Húsasmiðjunnar eru sextán og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fimm útibú og heildsalan H.G. Guðjónsson, sem sérhæfir sig í þjónustu við framleiðendur á innréttingum, hluti af Húsasmiðjunni.
Húsasmiðjan var stofnuð árið 1956 af Snorra Halldórssyni byggingameistara en hann reisti ýmsar þekktar byggingar í Reykjavík, þar á meðal Þjóðminjasafnið og Háskólabíó.
Fyrst í stað voru helstu viðfangsefni fyrirtækisins framleiðsla einingahúsa og timburvinnsla. Fljótlega hóf Húsasmiðjaneinnig að flytja inn og selja timbur. Árið 1970 hóf fyrirtækið starfsemi í Súðarvogi og ári síðar var það formlega orðið hlutafélagið Húsasmiðjan hf. Árið 1975 bættust steypustöð og einingaverksmiðja við plötuhús Húsasmiðjunnar í Súðarvogi og fyrirtækið hélt áfram að þróa eigin húsbyggingargerð meðfram því sem það þjónustaði aðra byggingaraðila. Meðal annars voru umfangsmikil verkefni í Grafarvogi sem var þá að byggjast upp.
Þegar komið var fram á níunda áratuginn var ljóst að aukin eftirspurn væri eftir byggingarefni og alls kyns öðrum vörum til að bæta og breyta á heimilum landsmanna. Húsasmiðjan bjó yfir nægri þekkingu til að mæta þessari þörf og stórt skref var stigið í sögu fyrirtækisins með opnun smávöruverslunar í Súðarvogi árið 1984. Verslunin naut strax mikilla vinsælda. Aðeins fjórum árum síðar bættist við verslun í Skútuvogi og árið 1991 var þriðja verslun Húsasmiðjunnar opnuð í Hafnarfirði en þar var jafnframt að finna timbursölu. Fimm árum síðar var opnuð ný verslun og timbursala í Keflavík og voru verslanirnar þá orðnar alls fimm talsins.
Þegar nálgaðist aldamótin fóru forsvarsmenn Húsasmiðjunnar að líta til þess hvernig mætti auka veg fyrirtækisins enn frekar og veita viðskiptavinum þjónustu á fleiri sviðum en áður. Hófst þá röð sameininga og yfirtaka á fyrirtækjum í skyldum rekstri, bæði byggingarvöruverslunum um land allt sem og ýmsum sérhæfðum verslunum og heildsölum. Hæst ber kaup Húsasmiðjunnar á verslunum Blómavals, rafiðnaðarverslunum Ískraft og innréttingafyrirtækinu H.G. Guðjónsson. Einnig var fjárfest í timbursölu og framleiðslu í Eistlandi og Lettlandi en sú starfsemi var seld aftur nokkrum árum síðar.
Fyrstu ár tuttugustu og fyrstu aldarinnar, rétt eins og síðustu ár aldarinnar sem leið, einkenndust af miklum vexti í starfsemi Húsasmiðjunnar og dótturfyrirtækja hennar. Þjónustan við landsbyggðina var stóraukin á þessum árum. Ný verslun og timbursala var opnuð bæði á Ísafirði og Egilsstöðum. Nýjar Húsasmiðjuverslanir opnuðu í Vestmannaeyjum og á Akranesi. Á Selfossi kom til sögunnar ný stórverslun Húsasmiðjunnar og Blómavals sem þjónað gat vaxandi íbúafjölda á Árborgarsvæðinu sem og vaxandi sumarhúsabyggðum í uppsveitum Árnessýslu. Þjónustan á höfuðborgarsvæðinu var jafnframt stórbætt með glæsilegum stórverslunum í Skútuvogi og Grafarholti og ásamt timbur- og dreifingarmiðstöð í Kjalarvogi.
Fjölskylda stofnandans, Snorra Halldórssonar, seldi félagið árið 2002 og á árunum í framhaldi urðu eigendabreytingar hjá Húsasmiðjunni enda gekk mikið á í viðskiptalífi þjóðarinnar á þessum árum.
Mestu tímamótin urðu þó í janúarmánuði árið 2012 þegar merki og rekstur Húsasmiðjunnar voru keypt af danska fjölskyldufyrirtækinu Bygma Gruppen A/S, en Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóðog Færeyjum. Má segja að nýtt eignarhald rími vel við sögu Húsasmiðjunnar sem fjölskyldufyrirtækis og leggja hinir rótgrónu dönsku eigendur Bygma áherslu á að Húsasmiðjan haldi áfram að sinna því sem hún gerir best — að þjóna íslenskum neytendum og iðnaðarmönnum með góðri vöru á góðu verði.
Snorri Halldórsson skráir Húsasmiðjuna sem einkafyrirtæki. Einingahúsaframleiðsla og timburvinnsla eru helstu viðfangsefni fyrirtækisins.
1956Húsasmiðjan byrjar að selja timbur.
1959Framleiðsla sumarhúsa hefst.
1963Plötuhús við Súðarvog tekið í notkun.
1970Breytt í hlutafélag og nafngift í Húsasmiðjan hf.
1971Verk hf, steypustöð og eininaverksmiðja keypt.
1975Byggð hús við tvær götur í Grafarvogi sem var þróunarverkefni í húsagerð.
1982Smávöruverslun opnuð í Súðarvogi.
1984Verslun opnuð í Skútuvogi.
1988Verslun og timbursala opnuð í Hafnarfirði.
1991Verslun og timbursala opnuð í Keflavík.
1996Húsasmiðjan sameinast SG á Selfossi og Hvolsvelli.
Húsasmiðjan kaupir Steinar hf. á Selfossi.
Húsasmiðjan opnar verslun í Grafarvogi.
Húsasmiðjan kaupir Blómaval.
Sameining við byggingavöruverslun KEA á Akureyri, Siglufirði og Dalvík.
Húsasmiðjan tekur við rekstri Smiðjunnar á Húsavík.
Byggingarvörur Ármúla 18 keyptar og breytt í Húsasmiðjuverslun.
Rafiðnaðarverslunin Ískraft, sem þjónar m.a. rafverktökum, rafveitum, og verktökum, keypt. 2000
Heildverslunin H.G. Guðjónsson sem þjónar innréttingamarkaðinum, keypt í febrúar.
Húsasmiðjan skráð á Verðbréfaþing Íslands.
Fjárfest í timburframleiðslufyrirtækinu Natural AS í Eistlandi
Fjárfest í gluggaframleiðslufyrirtækinu Ispan Baltics í Lettlandi.
Fárfest í timbursölufyrirtækinu Lako AB í Lettlandi.
Húsasmiðjan kaupir stærsta hluta rekstur Árvíkur ehf.
Byggingavöruverslunin Metró-Árval á Ísafirði keypt og opnuð verslun og timbursala í apríl.
Nýtt og mun stærra húsnæði á Selfossi tekið í notkun í maí.
Blómavalsverslun opnar í húsnæði Húsasmiðjunnar á Selfossi í maí.
Verslun og timbursala opnuð á Egilsstöðum í maí.
Þungavörulager við Kjalarvog opnaður í desember.
Byggingavöruverslunin Húsey í Vestmannaeyjum keypt og breytt í Húsasmiðju í maí.
Eigendaskipti urðu á félaginu í júní og í kjölfarið félagið tekið af Verðbréfaþingi.
Verslun í Skútuvogi breytt og bætt á haustmánuðum.
2002Húsasmiðjuverslun opnuð á Akranesi
2003Endurbætur fara fram á Húsasmiðjunni í Hafnarfirði
Húsasmiðjan kaupir rekstur KB byggingavara og opnar verslun undir merkjum Húsasmiðjunnar í Borgarnesi.
2004Aðalskrifstofa Húsasmiðjunnar flytur úr Súðarvogi í Holtagarða.
Eigendaskipti verða á Húsasmiðjunni og Steinn Logi Björnsson tekur við starfi Árna Haukssonar sem forstjóri.
Endurbætur fara fram á verslun Skútuvogi og Lónsbakka Akureyri
Glæsileg verslun Húsasmiðju og Blómavals opnar í Grafarholti
Húsasmiðjan Skútuvogi fær góðan nágranna þegar Blómaval opnar glæsilega verslun í Skútuvogi.
Kaupfélag Héraðsbúa og Húsasmiðjan sameina núverandi rekstur á Egilsstöðum og á Reyðarfirði.
Nýtt 2500 fermetra stórhýsi reist á Egilsstöðum undir nýja miðstöð fyrir byggingarvörur, rafmagnsvörur og blóma- og gjafavörur.
Húsasmiðjan yfirtekur rekstur KASK Byggingarvara á Höfn í Hornafirði.
2006Húsasmiðjan flytur í nýtt og glæsilegt 2500 fermetra verslunarhús á Egilsstöðum. Þar er glæsileg bygginga- og heimilisvöruverslun og timbursala ásamt verslunum Blómavals og Ískraft.
2007Apríl 2008
Húsasmiðjan opnar nýja verslunarmiðstöð að Fitjum í Reykjanesbæ, með verslun með bygginga- og heimilsvörur, timbursölu og verslunum Blómavals og Ískraft.
Nóvember 2008
Húsasmiðjan flytur í nýtt verslunarhús að Dufþaksbraut 10a á Hvolsvelli, ný og stórglæsileg verslun ásamt timbursölu.
Mars 2009
Húsasmiðjan opnar glæsilega Timburmiðstöð í versluninni í Grafarholti. og samhliða er rekstri timbursölu hætt í Súðarvogi. Með tilkomu Timburmiðstöðvar Húsasmiðjunnar í Grafarholti er nú allt undir sama þaki: bygginga- og heimilisvöruverslun, timbursala, timburráðgjöf og tilboðsgerð, ásamt verslun Blómavals.
Október 2009
Vestia, eignarhaldsfélag í eigu Landsbankans, eignast Húsasmiðjuna.
Janúar 2010
Sigurður Arnar Sigurðsson tekur við starfi Steins Loga Björnssonar sem forstjóri Húsasmiðjunnar.
Haust 2010
Framtakssjóður Íslands festir kaup á Vestia og þar með Húsasmiðjunni.
Nóvember 2011
Húsasmiðjan í Hafnarfirði flytur í nýtt og betra húsnæði við Dalshraun 15. Með því er aðstaðan bætt til muna frá því sem var. Hægt er að bjóða upp á breiðara vöruúrval auk þess sem Blómaval hefur opnað í nýju versluninni.
Janúar 2012
Danska byggingavörufyrirtækið Bygma A/S kaupir Húsasmiðjuna.
Nóvember 2015
Húsasmiðjan opnar nýja vefverslun husa.is
Febrúar 2016
Húsasmiðjan fagnar 60 ára afmæli og tilkynnir um allt að 20% lækkun á listaverði á mikilvægum byggingavörum, svo sem timbri, plötum, einangrun, steypustáli, skrúfum og festingum.
Ný verðstefna Húsasmiðjunnar endurspeglast jafnframt í nýju slagorði fyrirtækisins: „Byggjum á betra verði“.
Húsasmiðjan opnar glæsilega Fagmannaverslun og timbursölu í Kjalarvogi.
2017Júlí 2018
Aðalskrifstofur Húsasmiðjunnar flytja í Kjalarvogi.
Janúar 2019
Húsasmiðjan fer markvisst að kynna áherslur í umhverfismálum og benda markvisstá umhverfisvottaðar vörur í vefverslun og verslunum. Umhverfisvænar vörur og vörur sem nota má t.d. í Svansvottuð hús fá sér merkinguna "Græn vara" í vefverslun til að auka áhuga viðskiptavina á umhverfisvænum kostum.
2019Júní 2020
Kynnir Húsasmiðjan nýtt slagorð "Fyrir þig" sem endurspeglast í nýjum áherslum í þjónustu, umhverfismálum, sjálfbærni og fleira.
2020Nóvember 2021
Húsasmiðjan er fyrst byggingavöruverslana til að kynna sjálfsafgreiðslu app í verslunum sínum. Húsasmiðjuappið, nýtt þjónustu-og sjálfsafgreiðslu app kemur á markað og vekur mikla athylgi.
2021Mars 2022
Húsasmiðjan, Blómval og Ískraft flytja í glæsilega nýja verslun og timbursölu að Freyjunesi 1-3 Akureyri.
2022Nóvember 2023
Húsasmiðjan, Blómval og Ískraft flytja í glæsilega nýja verslun og timbursölu að Larsenstræti 6, Selfossi.
2023