Lauk- og hnýðisjurtum er yfirleitt skipt í flokka eftir því á hvaða tíma ársins þær eru settar niður og hvenær þær blómstra. Vorlaukar eru settir niður á vorin og blómstra á sumrin og fram á haust. Haustlaukar eru aftur á móti settir niður að hausti og blómstra á vorin.

Plöntur, sem við köllum vorlauka í daglegu tali, þurfa ekki endilega að vera lauk- eða hnýðisjurtir því sumar þeirra hafa einfaldlega gildar forðarætur.

Fæstir vorlaukar eða hnýði lifa veturinn af úti hér á landi og verður því að forrækta þau inni áður en þau eru sett út. Erlendis eru vorlaukar yfirleitt kallaðir sumarlaukar vegna þess að þeir blómstra fyrr en hér.

Þegar vorlaukahnýði og forðarætur eru forræktaðar inni á að setja þær í rúmgóðan pott með næringarríkri mold um miðjan mars og fram í maí. Því stærri sem þessar rætur eru, því fyrr þarf að setja þær niður. Bestur árangur næst með því að láta plöntuna standa í sama pottinum allan vaxtartímann.

Halda skal moldinni rakri allan vaxtartímann en gæta vel að frárennsli í pottinum því laukar, hnýði og forðarætur fúna standi þær í blautum jarðvegi. Séu hnýðin mjög hörð er reyndar gott að mýkja þau í vatni í 2 til 3 klukkustundir áður en þau eru sett í mold.

Líkt og með haustlauka og hnýði á að setja vorlauka og hnýði niður sem nemur tvisvar til þrisvar sinnum þykkt þeirra og þjappa moldinni lauslega í kring.

Eftir að laukarnir eru komnir í pott á að setja hann á bjartan stað. Þegar fyrstu blöðin koma í ljós á að flytja pottinn á svalari stað en gæta þess að birta sé nóg. Gott er að gefa áburð þegar vöxturinn er kominn vel af stað og plantan hefur náð vænum 10 sentímetrum á hæð.

Seinni hluta maí eða í byrjun júní er kominn tími til að herða jurtirnar með því að setja pottinn út á svalir eða tröppur í 2 til 3 klukkutíma á dag. Útiverutíminn er svo lengdur smám saman þar til hætta á næturfrosti er liðin hjá. Eftir það er óhætt að hafa plönturnar úti allan sólarhringinn.

Vorlaukar, hnýði og forðarætur þurfa bjartan og skjólgóðan stað í garðinum svo að blómin fái notið sín. Jurtir í pottum er auðvelt að flytja í skjól, gerist þess þörf. Það auðveldar þeim lífið og eykur blómgunina. Klípa skal burt visnuð blóm sem búin eru að blómstra. Það kemur í veg fyrir tilraunir til fræmyndunar og eykur blómgun.

Fæstar þessara plantna lifa veturinn af úti en þeir sem vilja rækta þær áfram eiga að láta blöðin sölna að fullu og taka svo pottinn inn fyrir fyrsta frost. Geyma skal pottinn með forðarótinni eða rótina sjálfa á þurrum og svölum stað yfir veturinn.

Næsta vor er forðarótin sett aftur í pott með góðri mold og þegar búið er að vökva vaknar jurtin af dvala sínum. Hringekja lífsins snýst endalaust.