Smaragðskott - Peperomia caperata 'Red'

Fjölær jurtkennd, sígræn og blaðfalleg planta með uppréttu vaxtarlagi
og myndar þéttan og um 20 cm háan brúsk. Blöðin langstikluð og með
rauðleitum bylgjuðum og æðaberum vaxkenndum blöðum. Blómin
kremhvít í löngu og mjóu axi og standa upp úr blaðbrúsknum. Fremur
auðveld í ræktun.

Tegundin Peperomia caperata er uppruninn í Brasilíu en afbrigðið
'Red' er ræktunarafbrigði og finnst ekki villt í náttúrunni og vegna
uppruna síns dafnar plantan best 18 til 24°C og í austur- eða
vesturglugga þar sem hún fær sól hluta úr degi eða í hálfskugga.

Plantan kýs hátt rakastig og því gott að láta pottinn standa á skál með
vikri eða steinvölum og úða lítillega í kringum hana en ekki á blöðin.
Þegar kemur að vökvun þá má yfirborð moldarinnar þorna milli
vökvana yfir vaxtartímann á sumrin og gefa væga áburðarblöndu
tvisvar í mánuði. Allra best er að vökva með volguvatni neðanfrá og
alls ekki yfir blöðin. Draga skal úr vökvun á veturna nóg er að
umpotta plöntunni á tveggja ára fresti í venjulega pottamold.

Ættkvíslin Peperomia, sem tilheyrir Piperaceae eða piparætt,

inniheldur um 1000 tegundir sem finnast í hitabeltinu og jöðrum þess í
Suður-Ameríku, Afríku og Suðaustur Asíu og eru margar þeirra
ræktaðar sem pottaplöntur og fáanleg í ýmsum blaðlitum.

- Vilmundur Hansen.