Ættkvísl með hátt í eitt þúsund tegundum og mörg hundruð afbrigðum og
blendingum. Heimkynni þeirra eru í Evrópu, Norður-Ameríku, Ástralíu og
Austur-Asíu.

Lauffellandi eða sígrænir, jarðlægir eða uppréttir runnar og tré sem geta náð 30
metra hæð í heimkynnum sínum. Sígrænar plöntur af ættkvíslinni kallast á
íslensku lyngrósir eða rósatré en lauffellandi azalea á latínu.

Mikill breytileiki í blaðlögun og stærð en blöðin eru yfirleitt löng og heilrennd.
Ræturnar þéttar og liggja grunnt. Blómstra snemma og blómin hvít, bleik, rauð
og fjólublá, yfirleitt endastæð, stór og í hálfsveip. Þrífast best í röku loftslagi og
hálfskugga og í moldarmiklum, rökum og örlítið súrum jarðvegi. Fjölgað með
sumargræðlingum.

Viðkvæmar hér og þurfa gott vetrarskjól, sérstaklega fyrir vorsólinni, eigi þær
að standa úti yfir veturinn.

Indíánar í Norður-Ameríku segja plöntuna fæla burt illa anda og vera verndandi.
Í Nepal er duft og smyrsl úr henni notað gegn blóðkreppusótt og höfuðverk.

Lyngrósin er þjóðarblóm Nepals.

Dæmi um yrki í ræktun. 'Cunningham’s White'. Harðgerð og hávaxin. Blómin
hvít með örlítið bleikum blæ. 'Scarlet Wonder'. Hálfur metri á hæð og með
rauðum blómum. Harðgerð.

- Vilmundur Hansen.