Gluggar og hurðir sem endast
Að velja og kaupa glugga og hurðir er fjárfesting til framtíðar. Þess vegna er mikilvægt að velja það sem endist gagnvart veðri og vindi. Einmitt þess vegna leggur Rationel höfuð áherslu á endingu. Rationel prófar allar sýnar vörur með tilliti til einangrunargildis, hljóðkrafna og styrks. Allir gluggar Rationel eru vottaðir og slagveðursprófaðir fyrir íslenskar aðstæður. Gott og vandað gæðahandverk hefur einkennt Rationel glugga og hurðir síðan fyrsta framleiðslan fór úr verksmiðjunni í Sdr.Felding árið 1954. Rationel er byggt á raustum grunni og er í dag alþjóðlegt framleiðslufyrirtæki með söluskrifstofur í mörgum löndum.
Hjá Rationel leggjum við metnað í að þér líði vel og sért örugg(ur) með þínar ákvarðanir. Að þú vitir að hurðirnar og gluggarnir sem þú velur stuðli að góðu og heilnæmu innilofti. Að vörurnar okkar séu búnar til við viðeigandi aðstæður og að gæðin séu ávallt í fyrirrúmi – svo mikil að gluggarnir og hurðirnar geti nýst komandi kynslóðum. Við köllum þetta ábyrgð, og hér á síðunni getur þú lesið meira um sértækar aðgerðir okkar og vottanir.
Það skiptir okkur máli að taka þátt í að passa upp á sameiginlegar auðlindir okkar og gefa til baka til samfélagsins. Þess vegna leggjum við áherslu á endurnýtingu í framleiðslunni og endurvinnslu íhluta að líftíma loknum. Á sama tíma styðjum við rannsóknir og umhverfismál, ásamt félagslegum og menningarlegum málefnum, í gegnum tvo sjálfseignarsjóði í almannaþágu.
Það þarf að vera heilbrigð skynsemi á bak við það sem við gerum. Við getum sýnt fram á ábyrga nálgun okkar með til dæmis Dansk Indeklima Mærkning (Danskri inniloftsvottun), FSC®-vottuðum viði og fjölmörgum prófunum sem meðal annars staðfesta endingu varanna okkar. Við bjóðum þér vörur sem eru framleiddar af ábyrgð, tryggja heilnæmt inniloft og draga úr CO2-fótspori heimilisins. Við hjálpum þér að viðhalda þeim, þannig að fjárfesting þín í nýjum gluggum og hurðum veiti þér hugarró og vissu um að hlutirnir séu búnir til af umhyggju.
Það er jú þegar öllu er á botninn hvolft þinn heimur sem við rammastýrum með gluggum og hurðum. Og við viljum líka passa upp á hann.
Gluggar og hurðir
...sem gott er að búa við
Hjá Rationel snýst ábyrgð meðal annars um fólk og vellíðan. Gluggar okkar og hurðir stuðla verulega að þægilegra og heilnæmara innilofti á öllum sviðum. Það leiðir á endanum til aukinna lífsgæða, öruggara hversdagsleika og færri áhyggja fyrir þig og fjölskyldu þína. Lestu meira um hvað gluggar og hurðir frá Rationel gera fyrir:
- Loftgæði
- Birtuskilyrði
- Hljóðvist
- Öryggi
Loftgæði Loftgæði skipta sköpum fyrir inniloftið og heilsu þína og fjölskyldu þinnar. Þess vegna er mikilvægt að loftið á heimilinu sé endurnýjað reglulega svo það haldist heilnæmt. Hjá Rationel höfum við gert þér auðvelt og öruggt fyrir að lofta út, jafnvel þótt þú sért ekki heima. Við bjóðum upp á ferskloftsloka (loftunarristar) sem valkost, svo þú getir hleypt fersku lofti inn sem viðbót án þess að þurfa að opna gluggann. Vörur Rationel eru að sjálfsögðu með inniloftsvottun (indeklimamærket). Það er þín trygging fyrir því að vörurnar gefi ekki frá sér eiturefni.
Birtuskilyrði Gluggar eru jafngildi ljóss, og dagsbirtan er líklega mikilvægasti þátturinn á heimilinu þínu. Ljósið hefur mikil og jákvæð áhrif á skap og einbeitingu. Orkusparandi gluggar og hurðir frá Rationel eru hönnuð til að hámarka magn dagsbirtu og gera kleift að hafa stærri og fleiri glerfleti, svo dagsbirtan geti flætt óhindrað inn í bústaðinn. A-merktar vörur Rationel með þriggja laga gleri eru auk þess orkugefandi, þar sem þær hleypa meira ljósi og hita inn en þær hleypa út.
Hljóðvist Friður og ró er gott fyrir bæði vellíðan þína og heilsu. Hljóð getur upplifast sem dásamlegir og þægilegir tónar, en hljóð getur líka verið óþægilegur hávaði. Hávaði er einn af þeim þáttum inniloftsins sem hefur mikil áhrif á þægindi okkar og heilsu – og þar með lífsgæði okkar.
Ef þú býrð til dæmis við fjölfarna umferðargötu, nálægt járnbraut eða iðnaðarsvæði, getur hávaðinn bæði truflað svefn og haft neikvæð áhrif á streitustig, sem getur haft ýmsar fylgikvilla í för með sér. Með hljóðeinangrunarpökkum frá Rationel er hægt að draga verulega úr hávaða, sem veitir þér skýra upplifun af friði og ró.
Öryggi Það er mikilvægt að þú getir upplifað öryggi á heimili þínu. Því miður eru innbrot ekki óalgeng, en tölfræðin sýnir þó lækkandi tilhneigingu. Það virkar að gera ráðstafanir til að tryggja heimilið sitt og þar er innbrotavörn glugga og hurða afgerandi þáttur.
Almennt er erfitt að brjótast í gegnum vörur Rationel, enda eru þær vottaðar samkvæmt hinum stranga breska staðli „Secured by Design“. Það þýðir að við höfum hannað innbrotavörnina beint inn í vörurnar með aukastyrktum og hertum festingum, skásettum skrúfum og öryggislímdum rúðum. Ef þú vilt enn meira öryggi bjóðum við einnig upp á aukna öryggispakka.
Gluggar og hurðir
...sem endast
Ábyrgð snýst um hvernig gluggar og hurðir eru framleidd, en einnig um hvernig þau reynast í notkun. Vörur Rationel eru hannaðar til að endast í marga áratugi og standast allt sem því fylgir hvað varðar vind, veður og slit. Þannig veist þú að vörurnar okkar eru góð, en jafnframt langtímafjárfesting. Lestu meira um:
- Langan líftíma
- Gæði og endingu
Gluggar og hurðir
...með umhugsun
Síðast en ekki síst snýst ábyrgð um að gæta vel að sameiginlegum auðlindum okkar og gefa til baka til samfélagsins. Þess vegna gróðursetjum við tré, endurnýtum efni, styrkjum samfélagið í gegnum sjóði og tryggjum að íhlutir séu endurvinnanlegir. Lestu um:
- CO2-minnkað gler – ECOLINE
- FSC®-vottaðan við
- Hönnun sem auðveldar sundurhlutun og endurvinnslu
- Framlag okkar til samfélagsins
Leiðbeiningar
Leiðbeiningar vegna mælinga á gluggum og hurðum
Meðferð á verkstað og geymsla
Ábyrgð á Rationel gluggum og hurðum
Fáðu tilboð í glugga
- Áratuga reynsla
- Hágæða vörur
- Hagstætt verð
- Viðurkenndir framleiðendur
Fáðu nánari upplýisngar um hurðir og glugga hjá ráðgjöfum Húsasmiðjunnar í síma 525-3000 eða sendu okkur fyrirspurn tölupóstfangið gluggar@husa.is
Hafa samband
Jón Birgir Jóhannsson
Söluráðgjafi
Gluggar og hurðir
Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar, Kjalarvogi 12-14, 104 Reykjavík
Mikael Pétursson
Söluráðgjafi
Gluggar og hurðir
Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar, Kjalarvogi 12-14, 104 Reykjavík
Sveinn Sigurðsson
Söluráðgjafi
Gluggar og hurðir
Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar, Kjalarvogi 12-14, 104 Reykjavík
Gunnar Ólason
Söluráðgjafi
Glugggar og hurðir
Kjalarvogur 12 -14
Eyþór Karlsson
Sérlausnir, Fagmannaverslun
Þjónusta, varahlutir og eftirsala
Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar, Kjalarvogi 12-14, 104 Reykjavík
Hafa samband - Selfoss
Fylgiskjöl - Rationel
Leiðbeiningar
Leiðbeiningar vegna mælinga á gluggum og hurðum
Meðferð á verkstað og geymsla
Ábyrgð á Rationel gluggum og hurðum
Ábyrgð og gallar á gleri
Rationel
DOP Rationel Formaplusw EO IS 20240815 Signed
EPD S P 07597 AURAPLUS FORMAPLUS Top Guided Rationel 2023 09 14 V5 (1)
EPD S P 07600 Rationel FORMA Topguided Pub Date2023 09 15
EPD S P 07599 Rationel AURA Topguided Pub Date2023 09 15
EPD Rationel AURAPLUS Sliding Door S P 09483 Publication 2024 05 28
EPD Rationel AURAPLUS And FORMAPLUS Glazed Entrance Door Inward Opening S P 07601 Publication Date 2024 05 28
EPD Rationel AURA And FORMA Glazed Entrance Door Inward Opening S P 07602 (1)
EPD Rationel AURAPLUS And FORMAPLUS Glazed Entrance Door Inward Opening S P 07601 Publication Date 2024 05 28 (1)
EPD IES 0024526 Rationel AURAPLUS FORMAPLUS Topguided Window With 3 Layer ECOLINE Glazing (1)
EPD 2024 05 16 Rationel AURAPLUS FORMAPLUS Flush Entrance Door (1)
DOP Rationel Forma W EM IS 20240815 Signed
DOP Rationel Auraplus W EY IS 20240815 Signed
DOP Rationel Aura W EX IS 20240815 Signed