Jotun Vörunúmer: 7049067

Drygolin VD Nordic Extreme B-base 0,68L

Drygolin VD Nordic Extreme B-base 0,68L
|
Smelltu á boxin til að stækka myndirnar

Jotun Vörunúmer: 7049067

Drygolin VD Nordic Extreme B-base 0,68L

Besta fáanlega þekjandi viðarvörnin frá Jotun fyrir hurðir, glugga og húsgögn. Frábær veðrunarvörn, einstök lit- og gljáheldni. Sjálfhreinsandi og regnheld eftir 1 klukkutíma. Sjá nánar

6.490 kr.
14 daga skilaréttur er á öllum vörum.

Skrifaðu skilaboð á kortið

1 af 1

Nafn móttakanda

400 stafir eftir Staðfesta Hætta við
  • Nánari upplýsingar

Drygolin Vindus & Dör Nordic Extreme er utanhúss olíumálning (alkýðolía styrkt með akrýlbindiefni) sem veitir mikið veðrunaþol. Er vatnsþynnanleg. Heldur gljáa og lit afar vel, sem lengir viðhaldstíma. Inniheldur sveppa- og mygluvarnarefni. Hentar á allt nýtt tréverk, áður olíuborið, eða málað tréverk, einnig gagnfúavarið. Sérstklega ætlað á glugga, hurðir, garðhúsgögn og fl. Má einnig nota sem lokaumferð á málma, bárujárn og plast. Málma þarf þá fyrst að grunna með ryðvarnargrunni. Grunnvinna : Undirflötur þarf að vera hreinn og þurr. Óhreinir, ómeðhöndlaðir fletir skal þrífa með Jotun Kraftvask. Nýtt tréverk sem hefur staðið ómeðhöndlað í meira en 4 vikur skal hreinsa með Jotun Husvask og bursta yfir með vírbursta. Áður meðhöndlaðir fletir skal hreinsa með Jotun Kraftvask. Lausa málningu/olíu/viðarvörn skal skrapa frá. Allir berir viðarfletir (eftir hreinsun/skröpun) skal grunna með Jotun Visir Oljegrunning. Allt nýtt tréverk skal einnig grunna með Jotun Visir Oljegrunning. Grunninn skal bera jafnt á, allir endar vættir vel 3-4 sinnum blautt í blautt. Málun : Á nýtt heflað tréverk skal mála 3 umferðir. Áður málað/ bandsagað tréverk skal mála 2 umferðir. Athugið að blanda saman dósum með ólíkum framleiðslunúmerum til að forðast litamismun. Hrærið vel fyrir notkun. MÁ EKKI FRJÓSA. Lítrinn þekur 6-8 fm á bandsagað tréverk í umferð, en 8-12 fm á heflað tréverk. Snertiþurrt eftir 1 klst og yfirmálun eftir 2 klst (miðast við 23°C og 50% raka), lægra hitastig og meiri raki lengja þurrktíma. Áhöld hreinsast með vatni og penslasápu.

Stuðningsvörur