- Nánari upplýsingar
TREBITT OLJEBEIS
Trebitt Oljebeis er hágæða olíubæs sem hannaður er til að verja og fegra utanhússvið. Bæsinn er gegnsær og dregur fram náttúrulega áferð og æðabera viðarins á einstakan hátt. Hann er sérstaklega þróaður til að smjúga djúpt inn í viðartrefjarnar, sem tryggir góða viðloðun og kemur í veg fyrir sprungumyndun og flögnun.
Varan inniheldur sérvaldar olíur og öflugar UV-síur sem verja viðinn gegn niðurbroti af völdum sólarljóss og koma í veg fyrir að hann gráni. Trebitt Oljebeis inniheldur einnig fúavörn sem hindrar vöxt yfirborðssveppa og myglu, sem gerir hann að frábærum valkosti fyrir íslenskar aðstæður þar sem reynir mikið á endingu. Notist ekki á göngufleti (pallagólf).
Undirbúningur:
- Undirbúningur: Allt yfirborð verður að vera hreint, þurrt og laust við fitu og óhreinindi.
- Nýtt timbur: Ómeðhöndlað timbur skal bæsa sem fyrst eftir uppsetningu. Ef timbrið hefur staðið óvarið lengur en í fjórar vikur skal bursta lausar viðartrefjar í burtu.
- Eldra timbur: Fleti sem hafa verið bæsaðir áður skal þvo með Jotun Kraftvask til að fjarlægja óhreinindi og matta yfirborðið. Fjarlægið lausan bæs og niðurbrotnar trefjar með stálbursta eða sköfu.
- Grunnun: Ekki er þörf á sérstakri grunnun þar sem bæsinn smýgur sjálfur djúpt inn í viðinn, en mikilvægt er að metta alla enda (endatré) vel.
Helstu eiginleikar:
- UV-vörn: Inniheldur öflugar síur sem verja viðinn gegn sólargeislum og gráma.
- Náttúrulegt útlit: Gegnsær bæs sýnir æðabera viðarins og gefur líflega áferð.
- Fúavörn: Verndar viðinn gegn sveppavexti og niðurbroti.
- Ending: Veitir góða vörn og endist vel á lóðréttum flötum við erfið veðurskilyrði.
- Umhverfisvottanir: EPD (Environmental Product Declaration).
Tæknilegar upplýsingar:
- Framleiðandi: Jotun
- Gerð: Gegnsær olíubæs
- Notkun: Utanhúss á nýtt, fúavarið eða áður bæsjað timbur
- Þekja: 8–12 m² á hvern lítra á sléttan við
- Umhverfisvottanir: EPD