Vörunúmer: 7049183

Jotun Jotaproff Fasedeakryl A-basi 9 ltr

Jotun Jotaproff Fasedeakryl A-basi 9 ltr
|
Smelltu á boxin til að stækka myndirnar

Vörunúmer: 7049183

Jotun Jotaproff Fasedeakryl A-basi 9 ltr

Afar sveigjanleg og endingargóð utanhússmálning sem hentar jafnt á tréverk, bárujárn og þök. Málningin veitir framúrskarandi vörn gegn veðrun og UV-geislum, þornar fljótt og tryggir langvarandi lita- og gljáheldni á fjölbreyttu undirlagi. Sjá nánar

28.990 kr. / dós
14 daga skilaréttur er á öllum vörum.

Skrifaðu skilaboð á kortið

1 af 1

Nafn móttakanda

400 stafir eftir Staðfesta Hætta við
  • Nánari upplýsingar

JOTAPROFF Fasadeakryl

Jotaproff Fasadeakryl er vönduð, vatnsþynnt akrýlmálning sem er sérstaklega hönnuð fyrir fagmenn. Hún er einstaklega fjölhæf og hentar vel á allt nýtt, áður olíuborið eða málað tréverk, auk þess að vera frábær málning á bárujárn og málmþök.

Málningin inniheldur öflug sveppa- og mygluvarnarefni og myndar teygjanlega filmu sem fylgir hreyfingum undirlagsins. Hátt litarefnisinnihald verndar flötinn gegn niðurbroti sólarljóssins og tryggir að húsið eða þakið haldist fallegt við krefjandi íslenskar aðstæður.

Undirbúningur:

  • Hreinsun: Yfirborð skal vera hreint og þurrt. Þvoið ómeðhöndlaða fleti með Jotun Husvask en áður málaða fleti með Jotun Kraftvask.
  • Tréverk: Skafið lausa málningu og lausa viðartrefjar. Grunnið beran við með Jotun Visir Oljegrunning; mettið enda- og sárvið vel (3–4 umferðir blautt í blautt).
  • Málmur og þök: Nýtt bárujárn skal veðrast í að minnka kosti 3 mánuði fyrir málun. Fjarlægið allt ryð og grunnið málmfleti með viðeigandi ryðvarnargrunni áður en málað er.
  • Málun: Berið 3 umferðir á nýtt heflað tréverk, en 2 umferðir á áður málaða fleti eða bárujárn.

Helstu eiginleikar:

  • Fjölhæfni: Ein málning sem hentar á tré, málm, þök og fasadeplötur.
  • Veðurþol: Veitir mikið viðnám gegn úrkomu og kemur í veg fyrir upplitun vegna UV-geisla.
  • Hröð þornun: Snertifrískt á skömmum tíma, sem minnkar hættu á skemmdum ef það fer að rigna.
  • Sveigjanleiki: Filman springur síður þótt hitasveiflur valdi hreyfingu í undirlaginu.
  • Umhverfisvottanir: Svansvottuð (Nordic Swan), EPD og M1 vottun.

Tæknilegar upplýsingar:

  • Framleiðandi: Jotun
  • Gerð: Jotaproff Fasadeakryl
  • Gljástig: 20–30% (hálfglans/hálfmött)
  • Eyðsla: 8–11 m²/L á tréverk; um 8 m²/L á bárujárn.
  • Snertifrískt: Um það bil 1 klukkustund (við 23°C).
  • Yfirmálun: Eftir u.þ.b. 2–6 klukkustundir (háð hita og raka).
  • Umhverfisvottanir: Svansvottun, EPD, M1.
ATHUGIÐ EKKI SKAL MÁLA ÞÖK EF DAGGARMARK ER HÁTT EÐA LÍKUR Á RIGNINGU NÆSTA SÓLARHRINGINN.

Stuðningsvörur