- Nánari upplýsingar
Slitsterkt, hálfmatt akrýl/pólýúrethan vatnslakk fyrir tréverk. Til noktunar innanhúss. Hentar vel á allt tréverk, eins og parkett, stigaþrep, hurðir, húsgögn og fl. Má einnig nota á flotuð gólf. Hrærið ávallt vel í dósinni fyrir notkun. Berið á með vönduðum pensli, rúllu eða sprautukönnu. Á ómeðhöndlaðan við er mælt með að þynna fyrstu umferð með 5% vatni. Ekki þynna umferð 2 eða 3. Gott að slípa létt á milli umferða. Þekur um 12 fm per lítri í umferð. Snertiþurrt eftir 1 klst, yfirmálun eftir 4 klst (23°C og 65% raka). Gætið að full hersla næst ekki fyrr en eftir 5-7 daga.