- Nánari upplýsingar
DeWalt XR 18V POWERSTACK Vélaset – DCD805 og DCF850
Þetta 18V vélaset frá DeWalt inniheldur tvær af gagnlegustu vélunum á vinnustaðnum: DCD805 höggborvélina og DCF850 höggskrúfvélina. Báðar vélarnar eru búnar kolalausum mótor sem skilar meira afli, minni hitamyndun og lengri líftíma. Powerstack rafhlöðurnar nýta nýja sellutækni sem gerir þær léttari og fyrirferðarminni en hefðbundnar rafhlöður án þess að slá af aflinu, sem minnkar álag á hendur við langvarandi vinnu.
Helstu eiginleikar:
- DCD805 höggborvél: Tveggja gíra borvél með 13 mm málmherðipatrónu, 15 herðivægisstillingum og höggvirkni fyrir borun í múr og létta steypu.
- DCF850 höggskrúfvél: Sérstaklega stutt og lipur vél sem kemst í þröng rými, með yfir 200 Nm herðivægi og þremur rafrænum hraðastillingum.
- Kolalausir mótorar: Nýta rafhlöðuna betur og tryggja að vélarnar þoli mikið álag til lengri tíma.
- Powerstack rafhlöðutækni: Léttari og fyrirferðarminni 18V rafhlöður sem veita öflugan straum og þola margar hleðslulotur.
Tæknilegar upplýsingar:
- Framleiðandi: DeWalt
- Módel / Gerð: DCK2050E2T-QW
- Spenna: 18V
- Mótor gerð: Kolalaus (Brushless)
- Hámarks herðivægi (DCF850): Yfir 200 Nm
- Patrónustærð (DCD805): 13 mm málmherðipatróna
- Rafhlöður: 2x 1,7Ah Powerstack Li-Ion