- Nánari upplýsingar
DEWALT DCH333NT HÖGGBORVÉL 54V
Þessi 54V SDS-Plus höggborvél keyrir á kolalausum mótor sem gefur henni nægan kraft í erfiðustu verkefnin á vinnustaðnum, hvort sem um ræðir borun eða fleygun í steypu. Með 3,5 J höggorku vinnur hún hratt og örugglega, en innbyggð titringsvörn lágmarkar álag á hendur og liði við vinnu.
Helstu eiginleikar:
- Kolalaus mótor: Skilar miklu afli, lengri endingartíma og nýtir rafhlöðuna betur.
- Þrjár stillingar: Hægt er að velja á milli borunar, höggborunar og fleygunar (snúningsstopp) eftir því sem verkefnið krefst.
- Lágmarkstitringur: Perform & Protect titringsvörnin dregur úr titringi niður í 8,5 m/s² sem eykur þægindi við langvarandi vinnu.
- Lýsing á vinnusvæði: Innbyggt LED-ljós lýsir upp borstaðinn þar sem birtu nýtur ekki við.
- Án rafhlöðu og hleðslutækis: Vélin er afhent án rafhlöðu og hleðslutækis, sem hentar vel ef þú átt þegar 54V XR FlexVolt rafhlöðukerfið.
Tæknilegar upplýsingar:
- Framleiðandi: DeWalt
- Módel / Gerð: DCH333NT-XJ
- Spenna: 54V XR FLEXVOLT
- Festing: SDS-Plus
- Höggorka: 3,5 J
- Titringur: 8,5 m/s²
- Hámarks borun í steypu: 30 mm
- Þyngd: 3,7 kg (án rafhlöðu)
- Fylgihlutir: DS300 TOUGHSYSTEM kerfistaska