Húsasmiðjan ehf.
Almennir sölu og afhendingarskilmálar vegna sérpöntunarvöru.
SÖLU OG AFHENDINGARSKILMÁLAR
1. Almennt
Sölu og afhendingarskilmálar þessir gilda um öll viðskipti sem Húsasmiðjan ehf. (hér
eftir nefnt Húsasmiðjan) gerir og semur um við viðskiptavini sína (kaupanda), nema
um annað sé sérstaklega samið. Allar umsamdar breytingar frá skilmálum þessum
skal gera með skriflegum eða sannanlegum hætti og þannig staðfestar milli aðila og
verða þá viðbót við hina almennu skilmála.
Skilmálarnir eiga við í öllum viðskiptum hvort sem um er að ræða kaup einstaklinga
eða lögaðila og taka til allrar vöru og þjónustu sem Húsasmiðjan selur og veitir.
2. Tilboð, pöntun og staðfesting
2.1 Öll tilboð frá Húsasmiðjunni eru gefin út skriflega eða þau send rafrænt.
Gildistími tilboðs er 14 dagar nema annað sé tekið fram í tilboði.
2.2 Öll tilboð eru með fyrirvara um breytingar á verði og framboði frá birgjum, og eru
ávallt háð gengi gjaldmiðils sé um pöntun að ræða hjá erlendum birgja. Gengi
gjaldmiðls kemur fram í tilboði. Sé gengi ekki tilgreint í tilboði er miðað við gengi
Seðlabanka Íslands við útgáfudag tilboðs. Endanlegt verð vöru miðast við gengi
þann dag sem varan er tollafgreidd.
2.3 Kaupanda ber skylda til að yfirfara tilboð Húsasmiðjunnar varðandi allt sem þar
kemur fram, m.a. mál og stærðir, lit á hinu pantaða (notast er við RAL litakóða) sem
og allt annað sem fram kemur í pöntuninni. Kaupandi ber ábyrgð á því að allt sem
fram kemur í tilboði sé rétt og samkvæmt hans óskum og kröfum. Allar málsetningar
í ytra byrði fasteigna er ávallt mældar utanfrá.
Framleiðendur senda oft á tíðum sérstakar pöntunarstaðfestingar, m.a. þegar verið
er að panta sérframleidda glugga eða hurðir, og ber kaupanda ávalt að yfirfara slíkar
pöntunarstaðfestingar og staðfesta þær sérstaklega. Eftir að kaupandi hefur
staðfest efni tilboð og annarra gagna sem tilboðinu fylgir, m.a. pöntunarstaðfestingar,
er kominn á bindandi samningur milli aðila um þá vöru sem um ræðir. Húsasmiðjan
ráðleggur kaupendum sem ekki hafa sérfræðiþekkingu á því sviði sem um ræðir,
sem dæmi mælingar fyrir gluggum og hurðum, að fá aðstoð fagaðila til að minnka þá
áhættu að vara sem pöntuð er komi ekki í röngum stærðum vegna rangrar máltöku.
2.4 Kaupanda ber því fulla ábyrgð á að yfirfara pöntunarstaðfestingar sérstaklega
áður en hann staðfestir það sem þar kemur fram. Kaupandi ber ábyrgð á því ef
vara, sem hann hefur staðfest kaup á, kemur ekki í því ástandi sem hann vænti,
hvort sem um er að ræða mál og stærðir, liti, og hvað annað sem kaupandi staðfestir
upphaflega.
3. Verð
3.1 Öll verð eru með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram.
3.2 Verð geta breyst án fyrirvara vegna breytinga á innkaupsverði, flutningskostnaði,
tollum, gjöldum eða gengisbreytingum.
3.3 Húsasmiðjan áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru fram að afhendingu ef
slíkar breytingar eiga við.
4. Greiðsluskilmálar
4.1 Almennir greiðsluskilmálar koma fram í almennum viðskiptaskilmálum
Húsasmiðjunnar sem má finna á:
www.husa.is/upplysingar/vidskiptathjonusta/vidskiptaskilmalar/
4.2 Ef um er að ræða sérpantanir ber kaupanda að greiða 30% staðfestingargjald
við staðfestingu tilboðs eða pöntunarstaðfestingar. Eftirstöðvar endanlegs kaupverðs
ber að greiða fyrir afhendingu vörunnar. Almennir viðskiptaskilmálar
Húsasmiðjunnar gild að öðru leyti um kaupin.
4.3 Kaupandi getur fengið vöru afhenta gegn fullnægjandi tryggingum eins og
bankaábyrgð eða öðrum tryggingum sem þarfnast samþykkis Húsasmiðjunnar.
Kaupendur sem eru með viðskiptareikninga geta samið um afhendingu sérpantaðrar
vöru með öðrum hætti en gegn greiðslu við afhendingu.
5. Afhending og áhættuskipti
5.1 Þegar vara er komin til landsins ber kaupanda að taka við vörunni á
afhendingarstað sem almennt er tilgreindur í tilboði. Áhættuskipti af hinu selda
færast þá til kaupanda. Verði um viðtökudrátt að ræða gilda ákvæði á almennum
viðskiptaskilmálum Húsasmiðjunnar. Verði um viðtökudrátt að ræða af hálfu
kaupanda ber að greiða geymslugjald.
5.2 Áhættuskiptin af hinu selda eru við afhendingu vörunnar og móttöku kaupanda
en geta orðið fyrr ef um viðtökudrátt kaupanda verður að ræða.
6. Breytingar og afpantanir
6.1 Eftir að tilboði hefur verið tekið eða pöntunarstaðfesting staðfest er ekki hægt að
gera breytingar eða afpanta vöru nema með skriflegu samþykki Húsasmiðjunnar þar
sem Húsasmiðjan þarf að kanna hjá birgjum hvort slíkt sé mögulegt. Allur kostnaður
þessu samfara er á ábyrgð kaupanda.
6.2 Ef til breytinga kemur af hálfu kaupanda sem hægt er að verða við greiðir
kaupandi kostnað eða hækkanir sem því getur verið samfara. Sjá nánar almenna
viðskiptaskilmála Húsasmiðjunnar.
6.3 Sérpantaða vöru eða sérsmíðaða er ekki hægt að skila. Kaupanda ber að
standa skil á greiðslu þegar vara kemur til landsins. Staðfestingargjald fæst ekki
endurgreitt.
7. Almennt um kvartanir kaupenda hvað varðar galla, varúðarskylda
kaupanda
7.1 Kaupanda ber skylda til að skoða vöruna við móttöku með vísan til almennra
reglna um skoðunarskyldu kaupanda.
7.2 Kvörtun vegna galla skal berast Húsasmiðjunni skriflega án tafar, og eigi síðar
en innan sjö daga frá afhendingu.
7.3 Komi upp gallar í seldri vöru á Húsasmiðjan og eða birgi rétt til úrbóta með vísan
til gildandi lagaumhverfis hvað almennan úrbótarétt varðar.7.4 Komi upp gallar á
afhentri vöru ber kaupanda að sýna sérstaka varúðarskyldu og aðhafast ekkert sem
valdið gæti frekari tjóni eða kostnaði, t.d. með því að hefja vinnu við efni sem grunur
er um að sé haldið galla.
7.5 Kaupanda ber skylda til að kynna sér leiðbeiningar sem frameiðendur gefa út
varðandi uppsetningu vöru og annað sem varðar meðhöndlun vörunnar eftir
afhendingu. Margir vöruflokkar þarfnast sérstakrar meðhöndlunar við notkun og
vinnu eins og ýmis gólfefni, klæðningarefni og ýmsar aðrar vörur sem verður að
meðhöndla eftir leiðbeiningum framleiðanda varðandi notkun og uppsetningu. Fari
kaupendur ekki eftir útgefnum leiðbeiningum fellur ábyrgð framleiðanda og seljanda
almennt úr gildi og því ekki möguleiki að gera kröfur á þá aðila. Nánari upplýsingar
hvað varðar leiðbeiningar og vörumeðhöndlun má finna á heimasíðu
Húsasmiðjunnar eða starfsfólki félagsins.
7.6 Þá vísast í almenna viðskiptaskilmála Húsasmiðjunnar hvað varðar galla sem
upp kunna að koma og sérstaka varúðarskyldu kaupanda. Þá vísast einnig til
gildandi lagaumhverfis á hverjum tíma.
8. Annað
8.1 Skilmálar þessir eru hluti af samningi kaupanda og Húsasmiðjunnar sé vara
pöntuð og samningur kemst á milli aðila.
8.2 Almennir viðskiptaskilmálar Húsasmiðjunnar koma til fyllingar skilmálum þessum
og ber kaupanda að kynna sér þá skilmála eins og fram kemur í skilmálunum að
ofan.
8.3 Til frekari fyllingar vísast til gildandi réttar á hverjum tíma, laga um lausafjárkaup
og laga um neytendakaup sem og önnur lög sem við geta átt.
8.4 Rísi ágreiningur milli aðila er varðar vörukaup og annað sem því tengist skulu
slík mál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Húsasmiðjan ehf.