GLUGGAR: VELFAC 200 ENERGY

- Upprunalega hönnunin

Einstök, stílhrein og tímalaus hönnun

Hleyptu dagsbirtunni inn með einstakri hönnun

VELFAC 200 ENERGY glugginn einkennis af einstakri, stílhreinni og tímalausri hönnun með einföldum og skörpum línum. Nettur karmur gluggans eykur glerflöt hans og þar með meiri dagsbirtu inn í húsið.

Gluggarnir passa vel í nýbyggingar og til endurbóta, þar sem flötur hússins að utan á að vera stílhreinn. Einstök hönnunin gerir það að verkum að engin sýnilegur munur er á gluggum, renni- eða svalahurðum, óháð opnunareiginleikum. Hönnunin undirstrikar hreinar línur hússins og gefur því spennandi og nútímalegt útlit.

Með valfrjálsu litavali að utan sem innan og miklu úrvali af aukahlutum, uppfyllir VELFAC 200 ENERGY kröfur til glugga í nútíma húsum.

Hönnunin mætir orkukröfum framtíðarinnar

Með VELFAC 200 ENERGY hefur þú möguleika á að ná orkuhagkvæmni og á sama tíma fá stílhreina og upprunalegu VELFAC 200 hönnunina. Nettir karmar og innarlega staðsett fúga, gefa glugganum svífandi útlit.

Betra loftslag innanhúss veitir aukin lífsgæði

Aukin dagsbirta í hversdagsleikanum eykur lífsgæði. Það skiptir því máli að nýta dagsbirtuna á sem bestann hátt. Einstök hönnun VELFAC 200 með nettum karmi, hleypir meiri dagsbirtu inn í húsið. Veljir þú hvíta eða ljósa áferð, endurkastast náttúruleg dagsbirtan inn í gegnum gluggann. Rýmið virkar þannig bjartara og notalegra, sem veitir aukin lífsgæði.

VELFAC 200 ENERGY

  • Svífandi ramminn gefur snyrtilegt útlit

  • Betri vörn gegn innbrotum þar sem glerlistar eru að innanverðu

  • Þægilegt handfang með stílhreinni hönnun

Munurinn liggur í smáatriðunum

Það er ekki einungis litur og lögun sem skiptir máli til að fá sem besta nýtingu á nýju gluggana þína. Þú hefur fjölmarga valmöguleika á gleri og fylgihlutum, sem passa einmitt fyrir þitt hús og þínar þarfir. Þú getur alltaf spurt okkur ef þú ert í vafa - við aðstoðum þig.

Glerið

VELFAC Orkusparnaður

Fjöldi glerlaga í glugganum hefur áhrif á kyndiþörf og loftslag innanhúss. Við bjóðum lausn með 3ja laga gleri til að hámarka orkusparnað og loftslag innandyra.

VELFAC Hljóðvist

Utanaðkomandi hávaði getur valdið miklu áreiti. Búir þú við umferðargötu geta gluggar sem draga úr hávaða komið í veg fyrir að utan að komandi hljóðmengun berist inn. Þú munt því upplifa þægilega viðveru innandyra.

VELFAC Sólarljós

Sólvarnargler er áhrifarík aðferð til að halda hitastigi innanhúss jöfnu í rýmum sem snúa í suður og vestur. Það varnar innstreymi sólarljóss og kemur í veg fyrir ofhitnun, en hleypir á sama tíma mikilli náttúrulegri birtu inn.

VELFAC Öryggi

Hægt er að velja öryggisgler sem ekki splundrast og hrynur þegar glerið brotnar. Það lágmarkar hættuna á slysum og er notað í m.a. svalahurðir, rennihurðir, útihurðir og gólfsíða glugga.

VELFAC Décor

Décor-gler hindrar gegnsæi utan og innan. Það er notað t.d. í baðherbergisglugga og útihurðir. Hægt er að velja um 5 mismunandi tegundir.

Hljóðvist

Sólarljós

Öryggi

5 mismunandi tegundir af Décor gleri

Satin

Pacific

Cotswold

Carré

Mat lam

Aukahlutir

Mundu að þú getur aðlagað hurðir og glugga að þörfum fjölskyldunnar. Öryggisbúnaður veitir ró í hversdagsleikanum. Við veitum þér ráðgjöf og finnum réttu lausnina fyrir þig.

  • Öryggislæsing takmarkar opnun gluggans við ca. 5cm. Losa þarf öryggislæsinguna með ákveðnum hætti svo hægt sé að galopna hann
  • Handfang með barnalæsingu er með takka sem halda þarf inni, svo hægt sé að opna gluggann
  • PN-öryggislæsing gerir innbrotsþjófum erfiðara fyrir
  • Stormkrókur heldur svalahurðinni fastri við loftun
  • Hægt er að fá læsanleg handföng

Öryggislæsing

Handfang m/barnalæsingu

Stormkrókur

Handfang m/lás

PN-öryggislæsing

Læsanlegt handfang

Hafðu samband

Fáðu tilboð og nánari upplýsingar hjá sérfræðingum okkar í Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar í síma 525 3000 eða tölvupósti gluggar@husa.is.

Heimasíða framleiðanda www.velfac.dk