Allt frá grunni að góðu heimili síðan 1956
Leiðandi í sölu á byggingavörum um land allt
Húsasmiðjan er markaðssinnað verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði miðlunar, sölu og dreifingar vöru og þjónustu.
Húsasmiðjan býður upp á breitt vöruúrval á samkeppnishæfu verði um allt land og rekur 14 verslanir undir merkjum Húsasmiðjunnar. Auk þess eru starfræktar 5 verslanir Blómavals, 4 verslanir Ískraft og eru þessar verslanir samtals 23 á landsvísu.
Vissir þú að Húsasmiðjan...
- var stofnuð árið 1956?
- rekur 14 Húsasmiðju-
verslanir um land allt? - rekur 5 Blómavalsverslanir um land allt?
- hefur verið hluti af dönsku bygginga-
vörukeðjunni BYGMA síðan 2012?
Öflug liðsheild starfsmanna
Húsasmiðjan leggur áherslu á að nýta til hins ítrasta hæfni, frumkvæði og þekkingu samhents hóps rúmlega 450 starfsmanna sem starfa hjá fyrirtækinu.
Leiðarljós og markmið okkar er...
Við erum leiðandi verslunar- og þjónustufyrirtæki á bygginga- og heimilisvörumarkaði. Markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu, rétt vöruúrval og samkeppnishæft verð í sátt við umhverfi og samfélag.
Húsasmiðjan er hluti af BYGMA
Húsasmiðjan er hluti af dönsku byggingavörukeðjunni BYGMA sem starfrækir verslanir í Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Færeyjum. Hjá BYGMA starfa samtals um 2.100 manns í meira en 100 verslunum. BYGMA er danskt fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 1952 og er í dag ein af leiðandi byggingavörukeðjum í Danmörku.
Gildin okkar eru...
-
Gleði
-
Fagmennska
-
Kraftur