Staðgreiðslureikningar
Þegar þú hefur sótt um staðgreiðsluviðskipti getur þú stofnað aðgang að þjónustuvef Húsasmiðjunnar. Þar getur þú skoða og prentað út vörukaup og sölunótur. Einnig getur þú skráð verk, haft umsýslu með úttektaraðilum og notendum.
Mánaðarreikningar
Öll vörukaup eru færð í reikning og er hvert úttektartímabil almanaksmánuðurinn. Uppsöfnuð viðskiptaskuld hvers almanaksmánaðar er með gjalddaga 1. dag næsta mánaðar og er eindagi 14. þess sama mánaðar. Ekki er tekið við umsóknum á skrifstofu.
Skilyrði um mánaðarreikning
Skilyrði fyrir því að reikningsumsókn sé samþykkt er að viðkomandi eða ábyrgðarmaður sé fasteignareigandi og ekki á skrá hjá Creditinfo Ísland.
Fyrirtæki þurfa að koma með ábyrgðarmann sem er fasteignareigandi og ekki á skrá hjá Creditinfo Ísland.
Við hærri fjárhæðir eða fjármögnun fram að láni frá banka förum við fram á annarskonar tryggingar.
Viðskiptareikningar veita upplýsingar um það, hafið endilega samband í síma 525-3274 eða sendið póst á innheimta@husa.is
Almennir viðskiptaskilmálar Húsasmiðjunnar
Þjónustufulltrúar
Athugið að öll samtöl við viðskiptareikninga eru hljóðrituð
Fyrir viðskiptayfirlit og/eða afrit af reikningum bendum við á þjónustuvef Húsasmiðjunnar.
Afgreiðslutími viðskiptareikninga
Símaafgreiðsla viðskiptareikninga er alla virka daga frá 9:00 til 15:00, en lokað er um helgar. Viðskiptareikningar taka við rafrænum umsóknum um reikningsviðskipti en ef þú ert ekki með rafræn skilríki þá er hægt að fylla út umsókn í næstu verslun.
Fagmannaklúbburinn
Húsasmiðjan býður öllum fagmönnum landsins að gerast meðlimir í Fagmannaklúbbi Húsasmiðjunnar og fá þannig betri kjör og njóta magnkaupa.
Hærri fjárhæðir/fjármögnun!
Við hærri fjárhæðir eða fjármögnun fram að láni frá banka förum við fram á annarskonar tryggingar.
Viðskiptareikningar veita upplýsingar um það, hafið endilega samband í síma 525-3274 eða sendið póst á innheimta@husa.is