- Nánari upplýsingar
Timberex Coloured Oil er hágæða olía byggð á náttúrulegum olíum. Umhverfisvæn, vatnsfráhindrandi og slitþolin. Mun ekki springa eða flagna. Þolin gagnvart víni, bjór, kaffi, tei. ávaxtasöfum og gosdrykkjum. Alveg örugg gagnvart fólki, dýrum og plöntum þegar olían er þornuð. Viðarflöturinn þarf að vera hreinn og þurr. Allt lakk þarf að slípa í burtu. Ráðleggjum að prufa ávallt á lítt áberandi fleti fyrst. Hrærið vel í dósinni fyrir notkun.
NOTKUN : Berið þunna umferð fyrst með pensli eða rúllu. Bíðið í 20-30 mínútur áður en önnur umferð er borin á með sama hætti. Berið þriðju umferð eftir 20-30 mínútur. Eftir 30 mínútur, þurrkið alla umfram olíu með bómullarklút. Eða pólerið yfir með rauðum eða hvítum nælon púða. Eftir 8-12 klst er mælt eindregið að slípa létt með nælonpúða til að loka fletinum og jafna út litablæðingar. Leyfið olíunni að þorna yfir nótt. Hægt að taka flötinn í létta notkun daginn eftir. Flöturinn verður smá saman meira og meira vatnsþolin næstu daga. Ryksugið eingöngu flötinn næstu 10 daga, allt vatn eða vökva skal þurrka samstundis upp.
VIÐHALD : Notið Timberex Hard Wax Oil reglulega til að fríska upp flötinn (ársfresti eða þegar þarf á að halda). Þetta byggir upp meira þol og slit með tímanum.
ÖRYGGI & HEILSA : Þessi olía er ekki skaðleg eða hættuleg til innöndunar. Tryggið ávallt góða loftræstingu þegar verið er að olíubera. Alla klúta og áhöld þarf að leggja í vatn eftir notkun og koma út fyrir vegna sjálfsíkveikjuhættu.
Tækniupplýsingar
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit