- Nánari upplýsingar
Benar BLANK er hágljáandi alkýðolía fyrir allan harðvið utanhúss. Er með ljósfilter (dregur úr niðurbroti útfjólublárra geisla sólar), sveppa- og mygluvörn. Benar BLANK gefur teygjanlega og vatnsverjandi vörn. Er með ljósbrúnan/gylltan blæ sem skerpir á viðnum. Hentar vel á bílskúrshurðar, hurðar, garðhúsgögn, glugga og fl.
UNDIRBÚNINGUR OG HREINSUN : Flöturinn skal vera hreinn, þurr og laus við fitu, sápuleifar og vax. Suman harðvið þarf að fituhreinsa fyrst með rauðspritti, svo léttslípaður. Áður meðhöndlaður við skal þrífa fyrst með Jotun Kraftvask 2-1 og svo léttslípað, slípið burt allan gráma. Á ómeðhöndlaðan við skal þynna fyrstu umferð um 20% með terpentínu (White Spirit). Berið olíuna blautt í blautt, þar til að viður mettast. Umframm olía sem gengur ekki inn í viðinn skal þurrka af með klút.
LOKAUMFERÐ : Nýr/slípaður viður, berið 3 umferðir óþynntar. Slípið létt á milli umferða. Ef mattrar áferða er óskað, þá skal nota Benar MATT í lokaumferð.
Snertiþurrt eftir 6 klst, yfirmálun eftir 24 klst miðað við 23°C og 50% loftraka. Þekur 14-16 fm hver lítri í umferð. Öll áhöld þrífast með terpentínu (White Spirit) eða penslasápu.
Tækniupplýsingar
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit