- Nánari upplýsingar
Drygolin Vindus & Dör Nordic Extreme er utanhúss olíumálning (alkýðolía styrkt með akrýlbindiefni) sem veitir mikið veðrunaþol. Er vatnsþynnanleg. Heldur gljáa og lit afar vel, sem lengir viðhaldstíma. Inniheldur sveppa- og mygluvarnarefni.
Hentar á allt nýtt tréverk, áður olíuborið, eða málað tréverk, einnig gagnfúavarið. Sérstklega ætlað á glugga, hurðir, garðhúsgögn og fl. Má einnig nota sem lokaumferð á málma, bárujárn og plast. Málma þarf þá fyrst að grunna með ryðvarnargrunni.
Grunnvinna :
Undirflötur þarf að vera hreinn og þurr. Óhreinir, ómeðhöndlaðir fletir skal þrífa með Jotun Kraftvask. Nýtt tréverk sem hefur staðið ómeðhöndlað í meira en 4 vikur skal hreinsa með Jotun Husvask og bursta yfir með vírbursta. Áður meðhöndlaðir fletir skal hreinsa með Jotun Kraftvask. Lausa málningu/olíu/viðarvörn skal skrapa frá.
Allir berir viðarfletir (eftir hreinsun/skröpun) skal grunna með Jotun Visir Oljegrunning. Allt nýtt tréverk skal einnig grunna með Jotun Visir Oljegrunning. Grunninn skal bera jafnt á, allir endar vættir vel 3-4 sinnum blautt í blautt.
Málun :
Á nýtt heflað tréverk skal mála 3 umferðir. Áður málað/ bandsagað tréverk skal mála 2 umferðir. Athugið að blanda saman dósum með ólíkum framleiðslunúmerum til að forðast litamismun. Hrærið vel fyrir notkun. MÁ EKKI FRJÓSA. Lítrinn þekur 6-8 fm á bandsagað tréverk í umferð, en 8-12 fm á heflað tréverk. Snertiþurrt eftir 1 klst og yfirmálun eftir 2 klst (miðast við 23°C og 50% raka), lægra hitastig og meiri raki lengja þurrktíma.
Áhöld hreinsast með vatni og penslasápu.
Tækniupplýsingar
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit