- Nánari upplýsingar
Jotaproff Fasadeakryl er utanhúss akrýlmálning sem veitir mikið veðrunaþol. Er vatnsþynnanleg. Inniheldur sveppa- og mygluvarnarefni.
Hentar á allt nýtt tréverk, áður olíuborið, eða málað tréverk, einnig gagnfúavarið. Einnig frábær á bárujárn og þök. Málma þarf þá fyrst að grunna með ryðvarnargrunni.
Grunnvinna :
Undirflötur þarf að vera hreinn og þurr. Óhreinir, ómeðhöndlaðir fletir skal þrífa með Jotun Husvask. Nýtt tréverk sem hefur staðið ómeðhöndlað í meira en 4 vikur skal hreinsa með Jotun Husvask og bursta yfir með vírbursta. Áður meðhöndlaðir fletir skal hreinsa með Jotun Kraftvask. Lausa málningu/olíu/viðarvörn skal skrapa frá.
Allir berir viðarfletir (eftir hreinsun/skröpun) skal grunna með Jotun Visir Oljegrunning. Allt nýtt tréverk skal einnig grunna með Jotun Visir Oljegrunning. Grunninn skal bera jafnt á, allir endar vættir vel 3-4 sinnum blautt í blautt.
NÝTT BÁRUJÁRN skal veðrast að LÁGMARKI í þrjá mánuði, þvegið með Jotun Kraftvask blandað 1 á móti 5 í vatni. Grunna með ryðvarnargrunni.
Málun :
Á nýtt heflað tréverk skal mála 3 umferðir. Áður málað/ bandsagað tréverk skal mála 2 umferðir. Nýtt bárujárn sem búið er að hreinsa, má mála beint á, lágmark tvær umferðir. Járn þar sem ryð er til staðar þarf að grunna og svo 2 umferðir. Athugið að blanda saman dósum með ólíkum framleiðslunúmerum til að forðast litamismun. Hrærið vel fyrir notkun. MÁ EKKI FRJÓSA. Lítrinn þekur 8-10 fm á bandsagað tréverk í umferð, en 11 fm á heflað tréverk. Lítrinn þekur 8 fm á bárujárni í umferð. ATHUGIÐ EKKI SKAL MÁLA ÞÖK EF DAGGARMARK ER HÁTT EÐA LÍKUR Á RIGNINGU NÆSTA SÓLARHRINGINN. Snertiþurrt eftir 1 klst og yfirmálun eftir 8 klst (miðast við 23°C og 50% raka), lægra hitastig og meiri raki lengja þurrktíma. Áhöld hreinsast með vatni og penslasápu.
Tækniupplýsingar
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit