- Nánari upplýsingar
Hentar við eftirfarandi aðstæður
• Líming flísa innan- og utanhúss, allt að 15 mm
límþykkt. Flísar geta verið úr ein- eða tvíbrenndum
leir, postulíni, terrakottaleir og fleiru. Undirlag má vera
óslétt og ekki er nauðsynlegt að jafna það fyrir límingu.
• Líming innan- og utanhúss á steinefnum, að því gefnu
að þau séu ekki viðkvæm gagnvart raka.
• Punktlíming á einangrunarefnum, svo sem frauðplasti,
stein- og glerull, Eraclit (viðar/steinplötum) og
hljóðeinangrunarplötum, korki og fleira.
Nokkrir notkunarmöguleikar
• Líming keramikflísa (ein- eða tvíbrenndra),
postulínsflísa, leirflísa og fleira, og náttúrulegra
steinefna (að því gefnu að þau séu ekki viðkvæm
gagnvart raka), á ýmiss konar yfirborð, svo sem:
– Sementsbundin gólfílagnarefni og gólfhitakerfi.
– Kalkefni og hefðbundinn múr.
– Gipsplötur, tryggilega festar.
• Líming flísa úr keramik eða náttúrusteini á eldra
• Líming á gólf ætluð fyrir þungaumferð.
• Útlögn keramikflísa þar sem loftræsting er
léleg og þörf á lágmarks rykmengun.
• Líming á gólf og veggi, sem hafa verið
rakavarin með Mapelastic.
• Líming innan- og utanhúss á flísum eða
ræmum úr keramikefnum á margbrotna fleti.
TÆKNILEGIR EIGINLEIKAR
Keraflex Maxi S1 er grátt duft úr sementi og
fínkornuðum sandi, auk verulegs magns
af tilbúnum fjölliðum og sérvöldum aukefnum.
Varan er þróuð á tilrauna- og rannsóknastofum
MAPEI. Nýþróuð tækni tryggir afar litla
rykmengun við blöndun. Vinnusvæðið verður
þar með betra og heilsusamlegra fyrir
starfsfólk.
• Gott flot, og þar með auðvelt í vinnslu.
• Breytilegt álagstengt flot (thixotropy) tryggir
að bera má Keraflex Maxi S1 á lóðrétta fleti
án þess að hætta sé á sigi, jafnvel þótt flísar
séu stórar og þungar.
• Þolir vel ójafnt undirlag og aflögun flísa.
• Frábær viðloðun við flest algeng
byggingaefni.
• Afar lítil rýrnun við hörðnun, jafnvel við mikla
þykkt.
• Langur vinnslutími eftir vatnsíblöndun.
VARNAÐARORÐ
Notið ekki Keraflex Maxi S1 við eftirfarandi
aðstæður:
• Á timbur og spónaplötur.
• Á málm-, gúmmí-, PVC- eða línóleumfleti.
• Á marmara eða náttúrustein þar sem hætta
er á blettamyndun eða saltútfellingum.
• Á náttúru- eða tilbúin steinefni, sem eru
rakadræg.
• Á forsteypta steinsteypu, þar sem hætta er
á innbyrðis hreyfingum.
• Þar sem nauðsynlegt er að hleypa umferð
fljótt á límda fleti.
Tækniupplýsingar
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
- Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit