Mapei Vörunúmer: 8412484

Mapegrout Tissotropico 25kg

Mapegrout Tissotropico 25kg
|
Smelltu á boxin til að stækka myndirnar

Mapei Vörunúmer: 8412484

Mapegrout Tissotropico 25kg

RÝRNUNARFRÍ, TREFJASTYRKT MÚRBLANDA TIL VIÐGERÐA Á STEINSTEYPU. Sjá nánar
Er varan til í verslun nálægt þér?
Vefverslun
Til á lager
Skútuvogi
Til á lager
Fagmannaverslun
Til á lager
9.350 kr. / poki
14 daga skilaréttur er á öllum vörum.

Skrifaðu skilaboð á kortið

1 af 1

Nafn móttakanda

400 stafir eftir Staðfesta Hætta við
  • Nánari upplýsingar

HENTAR VIÐ EFTIRFARANDI AÐSTÆÐUR
Yfirborðsviðgerðir á skemmdum steinsteypuflötum,
lóðréttum, eða láréttum
Nokkrir notkunarmöguleikar
• Viðgerðir á skemmdri og veðraðri steinsteypu,
t.d. horn og kverkar við burðarbita og -súlur, og
svalabrúnir, sem til eru komnar vegna tæringar
styrktarjárns.
• Endurbygging steypuþekju yfir járnagrindur.
• Sléttun á yfirborðsójöfnum frá malarvösum í steypu,
steypuskilum, götum eftir fjarlægðarklossa í mótum,
útstæð steypustyrktarjárn og fl.
• Fylling í stífum steypuskilum.
• Yfirborðsviðgerð á flötum sem eru undir miklu
núningsálagi, t.d. skurðir, iðnaðargólf, innkeyslurampar
og fl.
• Yfirborðssléttun á steyptum hafnarmannvirkjum og
jarðgangnaklæðningums.
• Viðgerðar á brúarundirstöðum.
TÆKNILEGIR EIGINLEIKAR
Mapegrout Thixotropic er viðgerðarmúr, samsettur
úr öflugri sementsblöndu, völdum jarðefnum og
íblöndunarefnum, auk tilbúinna trefja. Þessum efnum er
blandað saman samkvæmt uppskrift sem þróuð hefur
verið í rannsókna- og tilraunastofum MAPEI.
Við blöndun með vatni verður Mapegrout Thixotropic
að afar þjálli múrblöndu með álagstengdum
floteiginleikum (thixotropic). Hana má því leggja á
lóðrétta fleti án sigs, jafnvel í mikilli þykkt án þess að
þarfnast mótasmíða af neinu tagi.
Sé Mapegrout Thixotropic eingöngu blandað vatni, er
nauðsynlegt að láta múrinn harðna við mikinn loftraka
til þess að tryggja að þenslueiginleikar hans komi fram
að fullu. Því miður getur reynst erfitt að ná og halda þeim
aðstæðum á verkstað. Hins vegar með íblöndun 0,25%
Mapecure SRA, sé yfirborð í snertingu við loft, næst góður
árangur, þar sem íblöndunin dregur mjög úr rýrnun múrsins.
Mapecure SRA gegnir því stóru hlutverki í að tryggja
betri og jafnari hörðnun múrsins. Blanda þess við
Mapegrout Thixotropic má því kalla háþróað múrkerfi,
þar sem íblöndunarefnið hægir á uppgufun vatns og ýtir
þar með undir æskileg efnahvörf þess við múrefnin.
Mapecure SRA verkar því sem íblandaður herðir,
og vegna samverkunar þess með virka hluta
sementsefnanna, dregur það úr rýrnun sem nemur
20-50%, miðað við stöðluð gildi, án íblöndunar. Þetta
leiðir augljóslega til minni sprungumyndunar.
Þegar Mapegrout Thixotropic hefur náð fullri hörku,
eru eiginleikar þess sem hér segir:
• mjög hátt beygju- og þrýstiþol;
• fjaðurstuðull, hitaþanstuðull og gegndræpi vatnsgufu,
eru svipuð og í hágæðasteinsteypu;
• vatnsþétt;
• mjög góð viðloðun við eldri steinsteypu, að því gefnu
að hún hafi fyrst verið vandlega vætt. Sama á við um
steypustyrktarjárn, hafi þau verið meðhöndluð með
Mapefer eða Mapefer 1K;
• mikið núningsþol.
Mapegrout Thixotropic uppfyllir kröfur staðalsins
EN 1504-9 (“Efni og kerfi til viðhalds og verndunar
steinsteypuvirkja, -skilgreiningar, kröfur, gæðaeftirlit, mat
– Almenn viðmið við notkun byggingarefna og kerfa”)
auk lágmarkskrafna í staðli EN 1504-3 (“Viðgerðir á
álagsberandi og álagslausum virkjum”), fyrir álagsberandi
múr í flokki R4.
EN 1504-3 Rýrnunarlaus trefjastyrktur viðgerðarmúr fyrir steinsteypu

Tækniupplýsingar

  • Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
  • Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
  • Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
  • Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
  • Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit
  • Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit

Stuðningsvörur