- Nánari upplýsingar
Með HUE Dim switch rofanum geturðu slökkt, kveikt eða dimmað HUE ljósin hjá þér án þess að þurfa að nota símann þinn, auk þess geturðu skipt á milli 5 mismunandi sena. Allar Philips HUE perur og ljós eru tengjanleg við HUE Dim switch rofann, til að skipta á milli lita þarf að vera búið að setja upp senu í HUE appinu og tengja þá senu inn á rofan. (Nauðsynlegt er að vera með brúnna til að gera þetta) Nota HUE dim switch rofann án brúar. - Getur tengt allt að 10 perur eða ljós á einn rofa. - Dimmir, slekkur á og kveikir á peru eða ljósi Nota HUE dim switch rofann með brú. - Getur stjórnað öllum HUE ljósunum þínum, t.d. við útidyrahurð sem aðalrofi og slekkur á öllum ljósum þegar farið er út. - Getur stjórnað litarsenum, t.d. ýttu 2 sinnum snöggt á ákveðin takka til að fá ákveðin lit á ljósið. Auðveldur í uppsetningu. - Hægt að skúfa á vegg - Hægt að líma (kemur með límbandi) - Settu hann í ísskápinn, er með seglli. Hvað er Philips HUE ? Ef þú ert ekki nú þegar með Philips HUE lýsingu hjá þér þá langar okkur að segja þér frá þessum frábæru vörum. Philips HUE býður upp á breiða vörulínu af perum, led borðum, lömpum og ljósum sem þú getur stjórnað úr símanum þínum eða spjaldtölvu, snjallperurmar eru settar í ljósin og eru með E27 eða E14 skrúfgangi. Þú einfaldlega setur þær í ljósið þitt, opnar HUE appið, bætir perunni inn í appið og velur í hvaða herbergi hún er í. Þetta á við allar vörurnar frá HUE, þetta er einfalt og þægilegt, ef þig vantar frekari útskýringu eða upplýsingar um HUE vörurnar okkar, kíktu þá í næstu verslun hjá okkur og sölufólk okkar aðstoðar þig.