- Nánari upplýsingar
LAUFEN PRO gólfstandandi salerni Rimless án setu
Laufen Pro er nútímalegt og stílhreint gólfstandandi salerni sem hannað er með hreinlæti og fagurfræði í huga. Skálin er „back-to-wall“ sem þýðir að hægt er að fella salernið alveg upp að vegg, sem gefur snyrtilegt útlit og auðveldar þrif á gólfi. Seta er seld sér.
Salernið er með „Rimless“ tækni, sem þýðir að engin skola brún er innan í skálinni þar sem óhreinindi og bakteríur geta safnast upp. Þetta tryggir skilvirkt skol og mun auðveldara viðhald. Skálin er hönnuð fyrir skrúfufestingu í gólf og er með P-lás (lárétt úttak). Til að mögulegt sé að fella það upp að vegg þarf að kaupa viðeigandi WC hólka með.
Helstu eiginleikar:
- Rimless: Án skolbrúnar sem auðveldar þrif og eykur hreinlæti.
- Back-to-wall: Fellur þétt að vegg og felur lagnir fyrir fágað útlit.
- Hönnun: Hluti af hinni vinsælu Laufen Pro línu sem þykir bæði tímalaus og endingargóð.
- Skrúfufesting: Gert ráð fyrir öruggri festingu með skrúfum í gólf.
Tæknilegar upplýsingar:
- Framleiðandi: Laufen
- Vörunúmer: H8289684007371
- Gerð: Pro
- Útfærsla: Gólfstandandi, P-lás (lárétt)
- Efni: Keramik