- Nánari upplýsingar
MAPEGROUT COLABILE 5-40 mm 25kg: Fljótandi trefja- og akrýlstyrkt múrblanda til viðgerðar og fyllinga í steinsteypu utandyra. Blanda sem rýrnar ekki og hentar í lagþykkt frá 0,5 - 4 cm. Vinnslutími ca. 1 klst. fer eftir hitastigi. Hörðnunartími ca 4-5 klst. við 10°C Mapegrout Colabile hentar hentar vel þar sem þarf að endurbyggja skemmda steypu, endurforma járnbenta steypu, súlur og lagfæra steypt gólf (svalagólf). Þægilegt að hella í mót. Bleytið flötinn áður en blandan er sett á. Hellið löguninni í mótin eða á þann stað sem á að nota hana. Ef lagið er meira en 4 cm á þykkt er ráðlagt að leggja það í fleiru en einu lagi eða blanda Colabile 30% með sandi/fínni möl 2-10 mm. Blandist eingöngu með vatni, 25 kg þurrefni með 3,6 - 4 ltr. Efnisnotkun, 20 kg/m2 á hvern cm. Notið efnið ekki við lægra hitastig en 5°C.