- Nánari upplýsingar
BM Vallá Gólfflot 5-50
BM Vallá Gólfflot 5-50 er milli-fín flotblanda sem er ætluð til að fleyta eða spartla múrlag á lárétta fleti innanhúss. Blandan er sementsbundin og fjölliðublönduð, tilbúin til notkunar þar sem einungis þarf að bæta við vatni. Hún er sérstaklega hönnuð til að jafna áferð undir yfirborðsefni á borð við parket, flísar, dúka og málningu.
Efnið má bera á í þykktum frá 5 mm til 50 mm í einni umferð og hentar því vel þar sem þarf að rétta af verulegar ójöfnur. Blandan er hraðharðnandi með vinnslutíma upp á 20–25 mínútur og hentar jafnvel á gólf þar sem er álag, t.d. í léttum iðnaði. Varan er með EPD umhverfisyfirlýsingu og er leyfileg til notkunar í Svansvottuðum byggingum.
Helstu eiginleikar:
- Þykktarsvið: Hentar fyrir lög frá 5 mm upp í 50 mm.
- Notkunarsvið: Innanhúss, undir parket, flísar og önnur gólfefni.
- Vinnslutími: Hraðharðnandi með vinnslutíma um 20–25 mínútur.
- Álag: Hentar fyrir gólf með álagi, t.d. léttan iðnað.
- Kornastærð: Mesta kornastærð er 1 mm.
- Umhverfisvottanir: EPD (Umhverfisyfirlýsing), Leyfilegt í Svansvottað hús.
Tæknilegar upplýsingar:
- Framleiðandi: BM Vallá
- Vörunúmer: 46-220
- Gerð: Gólfflot 5-50
- Magn: 25 kg
- Kornastærð: 0–1 mm
- Lagþykkt: 5–50 mm