Umhverfisstefna Húsasmiðjunnar og Blómavals

Húsasmiðjan leitast við að starfa í sátt við umhverfið meðal annars með því að minnka stöðugt vistspor rekstrarins og virðiskeðju fyrirtækisins með markvissum ákvörðunum og  aðgerðum.

Umhverfisstefnan í framkvæmd

Húsasmiðjan skuldbindur sig til að vinna með markvissum aðgerðum að því að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar og auðvelda vistvænar framkvæmdir með því að:

  • Starfa samkvæmt reglum og lögum sem gilda um umhverfisvernd á Íslandi og leita stöðugt leiða til að spara orku, minnka úrgang og starfa í sem mestri sátt við umhverfi fyrirtækisins og framkvæma reglulega áhættumat fyrir rekstrareiningar. 
  • Hafa að leiðarljósi að rekstrarákvarðanir taki mið af að skapa heilbrigt starfsumhverfi og skynsamlega nýtingu auðlinda.
  • Efla samstarf við birgja sem huga markvisst að umhverfi sínu, eru vottaðir, og framleiða vörur með eins umhverfisvænum hætti og unnt er.  Markmið Húsasmiðjunnar er jafnframt að kynna umhverfisvænar vörur markvisst, bjóða upp á nýjungar, tryggja sýnileika umhverfisvænna vara og lausna  lausna á vef og í verslunum.  Markmið okkar er að bjóða upp á umhverfisvæna valkosti í öllum helstu vöruflokkum.
  • Vinna markvisst að fræðslu og þjálfun starfsmanna til að auka þekkingu á umhverfismálum og deila þeirri þekkingu einnig með viðskiptavinum okkar.  
  • Hvetja alla hagaðila til almennrar virðingar fyrir umhverfinu. 
  • Setja reglulega mælanleg og tímasett markmið í umhverfismálum. 

2020: Samfélagsuppgjör Húsasmiðjunnar

Húsasmiðjan hefur birt samfélagsuppgjör fyrir 2020 í samstarfi við Klappir Grænar lausnir hf sem er liður í stefnu Húsasmiðjunnar í að auka áherslu markvisst á umhverfis og samfélagsmál ásamt því að leita leiða til að lágmarka kolefnisspor starfseminnar.  Allar verslanir, skrifstofa og vöruhús Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískraft ásamt bíla- og tækjaflota eru hluti af samfélagsuppgjörinu.    

Með markvissum aðgerðum tókst Húsasmiðjunni að lækka mælda heildarlosun koltvísýringsígilda frá starfseminni um 12 prósent á milli áranna 2019 og 2020 ásamt því að hafa nú kolefnisbundið losun í samstarfi við Kolvið og Votlendissjóð.

Niðurstöðum uppgjörsins er skipt í þrjá hluta: umhverfi, félagslegir þættir og stjórnarhættir.  Uppgjörið er unnið skv. UFS leiðbeiningum Nasdaq fyrir 2020 en viðmiðunarárið er 2019

2019: Samfélags- og umhverfisskýrsla BYGMA og Húsasmiðjunnar

Húsasmiðjan er hluti af BYGMA samstæðunni og er samfélags- og umhverfisskýrsla BYGMA nú aðgengileg á vef Húsasmiðjunnar. BYGMA samstæðan rekur yfir 100 byggingavöruverslanir á Norðurlöndunum.
 
Tilgangur skýrslunnar er að gefa góða mynd af stefnu og áhrif fyrirtækjanna á umhverfi og samfélag þeirra í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum, Grænlandi og  Íslandi. 
 
Meðal þess sem fjallað er um í skýrslunni eru umhverfismál, jafnréttismál, menntun, þjálfun og stuðningur við starfsfólk, viðskiptasiðferði ásamt ýmsum verkefnum og góðum málum sem fyrirtækin vinna að í samvinnu við nærumhverfi sitt í hverju landi.
 
Samfélags- og umhverfisskýrsla BYGMA og Húsasmiðjunnar

Hleðslustöðvar

Húsasmiðjan var fyrst byggingarvöruverslana til að bjóða upp á hleðslutöðvar fyrir rafmagnsbíla í Fagmannaverslun árið 2017. Sjáðu úrvalið af hleðslustöðvum hér

 

Grænar vörur í Húsasmiðjunni

Húsasmiðjan býður upp á eitt mesta úrval landsins af umhverfisvænum byggingavörum. Allar umhverfisvænar og -vottaðar vörur eru sérmerktar á husa.is með grænum borða sem við köllum "Græn vara". Sjá nánar hér

Umhverfisvænar vörur

Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á mikið úrval af umhverfisvænum vörum. Sjá umhverfisvæn merki hér

Timbur úr sjálfbærum skógum

Nánast allt okkar timbur kemur úr sjálfbærum skógum. Sjá timbur og pallaefni hér

Við flokkum sorp

Við höfum í mörg ár unnið markvisst að því að minnka sóun og flokka sorp í verslunum okkar um land allt og á skrifstofum

Við kveðjum plastpokann

Árið 2020 kveðjum við poka úr plasti og skiptum þeim út fyrir umhverfisvæna poka úr maíssterkju. Pokana er hægt að fá við alla afgreiðslukassa í verslunum Húsasmiðunnar.