Tryggðarblómið fallega

Chrysanthemum eru falleg afskorinn blóm sem hafa notið notið
vinsælda lengur en að elstum menn muna enda standa þau lengi og
sóma sér vel í blómavasa og í skreytingum á heimilinu eða sem
vinargjöf.
Krísi eða tryggðarblóm eru fáanleg í mörgum litum og með ólíkri
blómlögum enda teljast yrkin í þúsundum og skiptast í margar deildir.
Gul, hvít bleik, fjólublá og tvílit, fylltar, einfaldar og með einföldum
eða pípukringdum krónublöðum.
Sé rétt farið með krísa geta þeir hæglega staðið frísklegir og glatt
augað í 10 til 14 daga.

Best er að skera lítillega neðan af stönglunum og setja blómin í vatn í
hreinum vasa með blómanæringu um leið og komið er með þau í hús.
Afskorin blóm þola almennt illa að standa í beinni sól og nálægt
miðstöðvarofni eða öðrum hitagjöfum.
Krísar kjósa fremur svalan en ekki kaldan stað sérstaklega á nóttunni
til að þeir standi lengur.
Skipta skal um vatn á blómunum á hverjum degi og skera 2 til 5
sentímetra með um 45 gráðu halla neðan af þeim og fjarlægja visnuð
blöð.
Tryggðarblóm eru upprunnin í Asíu og þjóðarblóm Japan og voru
ræktuð sem skrautjurtir í höllum keisarana í Kína fyrir 2500 árum. Þau
bárust til Evrópu undir lok átjándu aldar og í dag eru þau með allra
vinsælustu afskornum blómum í heimi.

- Vilmundur Hansen.