- Nánari upplýsingar
Eiginleikar: Hálkubani lækkar bræðslumark vatns meira en venjulegt salt og bræðir því ís við lægra hitastig. Hálkubani virkar einnig hraðar en salt og myndar ekki tauma eða rákir á gangbrautum og gólfum. Hálkubani skemmir ekki malbik, gólfefni, teppi, skó, hjólbarða eða bílalakk. Notkun: Stráið þunnu lagi yfir ísinn og leyfið efninu að bræða hann. Hægt er að nota Hálkubana til fyrirbyggingar, með því að strá áður en kólnar í veðri. Athugið: Mælt er á móti notkun efnisins á steinsteypu, sem er innan við árs gömul. Einnig getur efnið skemmt steinsteypu þar sem eru komnar sprungur. Hálkubani er rakadrægur og ber því að loka íláti vel eftir notkun.