Ef þú vilt hætta við kaup sem þú hefur gert í vefverslun:

Hafðu samband við vefverslun eins fljótt og mögulegt er (helst samdægurs) í síma 525-3200 alla virka daga kl 10-16 eða sendu póst á vefverslun@husa.is og við höfum samband. 

Ef vara er þegar farin af stað til viðskiptavinar þá gildir það sama og þegar vöru er skilað sem keypt hefur verið í vefverslun. (Sjá nánar hér að ofan)

 

Ef þú vilt skila vöru sem keypt var í vefverslun:

  • Hafa samband við vefverslun alla virka daga kl 10-16 eða senda tölvupóst á vefverslun@husa.is og við höfum samband.

  • Hægt er að skila vöru í vefverslun Húsasmiðjunnar í Skútuvogi alla virka daga kl 10-16 eða senda okkur vöruna ásamt útprentun á kvittun með Póstinum.

    Mikilvægt er að hafa samband við Vefverslun í síma 525 3200 áður en vöru er skilað. 

    Vinsamlegast merkið þá pakkann á eftirfarandi hátt ef hann er sendur í pósti: 
    Húsasmiðjan 
    b/t Vefverslun
    Skútuvogi 16
    104 Reykjavík

  • Þegar vara hefur borist vefverslun er vara endurgreidd.

 

Almennar skilareglur Húsasmiðjunnar

Vörum er almennt hægt að skila gegn framvísun reiknings fyrir kaupum á vörunni sé varan ónotuð og í söluhæfu ástandi bæði hvað varðar innihald og umbúðir. Skila ber vöru innan 14 daga frá kaupum. 

  • Framvísa skal nótu/kassakvittun þegar vöru er skilað.
  • Vara skal vera í söluhæfu ástandi.
  • Vara skal tekin inn á sama verði og hún var keypt á.
  • Við vöruskil er mögulegt að:
    • Fá aðra vöru í skiptum.
    • Bakfæra upphæð inn á viðskiptareikning.
    • Bakfæra upphæð inn á kreditkort viðkomandi hafi varan verið greidd með því korti.
    • Bakfæra upphæð inn á debetkort viðkomandi ef vöruskil eru samdægurs og verslað var og greitt var með viðkomandi debetkorti.
  • Vörur eru ekki endurgreiddar með peningum.