Klæðningar og þakstál

Húsasmiðjan býður viðskiptavinum sínum upp á hágæða klæðningar frá Límtré Vírnet í Borgarnesi. Hægt er að fá klæðningar í hinum ýmsu formum eins og báru, trapisu eða sléttar.

Einnig er litaúrvalið fjölbreytt til að koma til móts við þarfir hvers og eins.

Stálklæðningar eru fáanlegar í mörgum tegundum s.s. álsink, galvaniserað, litað polyester, plastisol og plexypolyester. Allt efni og yfirborðsmálning sem henta vel við íslenskar aðstæður.

Í áli eru allar klæðningar með PVDF lakki sem er mjög veðurþolið, auk þess að þola sólarljósið mjög vel. Liturinn helst nánast óbreyttur í fjöldamörg ár.

Nánari upplýsingar veita sölumenn og ráðgjafar okkar um land allt eða í síma 525-3000

Smelltu hér til að lesa um viðhald á þaki