
Sigurður Arnar Sigurðsson forstjóri Húsasmiðjunnar og Peter Christiansen
eigandi og stjórnarformaður Bygma.
Nýtt upphaf og tímamót á íslenskum byggingavörumarkaði.
21.mars 2012 markar tímamót á íslenskum byggingavörumarkaði þegar Húsasmiðjan verður formlega hluti af Bygma.
Bygma er danskt fjölskyldufyrirtæki sem er eitt stærsta byggingavörufyrirtæki Norðurlanda, með um 100 verslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og nú á Íslandi.
Húsasmiðjan verður áfram rekin undir eigin vörumerki um land allt en nú með sterkum bakhjarli Bygma samstæðunnar. Sameiningunni fylgja mikil tækifæri til hagsbóta fyrir íslenska neytendur.
Það eru því spennandi tímar framundan fyrir starfsfólk og viðskiptavini Húsasmiðjunnar.
Húsasmiðjan, allt frá grunni að góðu heimili síðan 1956.