Timburgluggar og ál-timburgluggar:
Ideal Combi Danmörku
Gluggar og hurðir framleiddar úr þurrkaðri kjarnafuru. Gluggar og hurðir frá þessum framleiðanda henta vel til allra gerða af byggingum.
Ideal Combi er framleiðandi gæðavottaðra viðar og ál-viðarglugga og hurða í Danmörku. Ideal Combi býður uppá fjölbreytta möguleika í útfærslum á gluggum og hurðum.
Ál-viðargluggar hafa margfalt meira veðrunarþol og endast mun betur en hefðbundnir viðargluggar, þar sem álhluti glugga er að utanverðu.
Einn mesti kosturinn við ál-viðarglugga er að þeir eru nánast viðhaldafríir.
www.idealcombi.dk
Viðargluggar:
Viking Windows Eistlandi
Framleiðandi gæðavottaðra viðarglugga í Eistlandi. Gluggar og hurðir framleiddar úr þurrkaðri kjarnafuru. Gluggar og hurðir frá þessum framleiðanda henta einstaklega vel til sumarhúsa og einnig einbýlishúsa.
www.viking.ee
Álgluggar:
Glaskek Eistlandi
Álgluggakerfin sem þessi framleiðandi framleiðir eingöngu úr, heitir SCHÜCO og er leiðandi á heimsmarkaði í þessum kerfum. Glaskek framleiðir eftir hönnun arkitekta og annarra hönnuða en eftir ströngu gæðakerfi SCHÜCO. SCHÜCO álgluggakerfin
þykja henta sérlega vel þar sem glugga og glerhliðar eru stórar og taka á sig mikið vindálag t.d. skrifstofubyggingar og verslunarhúsnæði. Það hefur færst í vöxt hin seinni ár að nota þessi kerfi einnig í aðrar gerðir af húsum, þar sem ending þeirra er miklu meiri en hefðbundinna glugga og eru viðhaldsfríir.
www.glaskek.ee
Stálhurðir og stálgluggar:
Sakumetall Eistlandi
Sakumetall framleiðir stálhurðir og stálgluggaramma sem standast þær brunakröfur sem reglugerðir segja til um. Hægt er að fá ýmsan búnað með þessum hurðum svo sem hurðapumpur, felliþröskulda og hinn ýmsan opnunarbúnað. Hurðir geta fengist annahvort grunnmálaðar eða fullmálaðar í hinum ýmsu litum í RAL-litakerfinu.
www.sakumetall.ee
Þakgluggar og ofanljós:
Hetag Danmörku
Hjá þessum framleiðanda ofanljósa og opnanlegra þakglugga eru til hinar ýmsu útfærslur á kúplum, bæði með og án opnunarbúnaðar til útloftunar og reyklosunar. Þakgluggar geta fengist með allt að þriggja laga akrýlplasti í kúplum.
www.hetag.dk
Stálvirki:
Maru Metall Eistlandi
Maru Metall er stálsmiðja sem tekið hefur að sér hin ýmsu verk í Eistlandi, Finnlandi, Noregi og núna einnig á Íslandi. Má þar nefna fjölnota íþróttahús á bæði Akranesi og einnig á Reyðarfirði. Þessi mannvirki eru um 8.700 m2 að stærð og voru bæði tekin í notkun á árinu 2006. Til gamans má geta þess að þegar Eistlendingar unnu evrópsku söngvakeppnina, þá voru margir í vafa um að Eistland gæti staðið við það að halda keppnina ári seinna. Þetta tókst þeim en var stórvirki fyrir þessa þjóð, og Maru Metall sá um allt stálburðar-virkið í byggingunni.
www.maru.ee
Sumarhús:
Danhaus Danmörku
Hágæða sumarhús frá Esbjerg í Danmörku. Danhaus hefur áralanga reynslu í framleiðslu sumarhúsa fyrir Evrópumarkað. Við framleiðslu húsanna er ýtrustu kröfum um gæðavottun fylgt. Eingöngu er notað vottað úrvals sænskt timbur í húsin.
www.danhaus.dk