Músavarnir



Mýsnar leita inn í hitann þegar kólna fer úti, þá er eins gott að vera tilbúinn að varna þeim inngöngu eða fanga þær sem sleppa inn.

Í verslunum Húsasmiðjunnar er að finna ýmsar vörur sem snúa að músavörnum, allt frá hefðbundnum músagildrum og hátíðni músafælum að nokkrum gerðum af gildrum sem fanga mýsnar lifandi þannig að það er hægt að sleppa þeim út í móa.

Þar á meðal:

Músavinur: lítill lokaður hólkur með fellihlera á öðrum endanum.  Beitu komið fyrir innst í hólknum, músin hleypur inn og hlerinn lokast á eftir henni.

Músahótel: safnkassar sem eru með pláss fyrir nokkrar mýs í einu.

Góður frágangur heldur músunum úti.
Það getur borgað sig að vanda til frágangs á byggingum til þess að halda músunum úti.
Meðal þess sem Húsasmiðjan hefur upp á að bjóða í slíku efni er:

Músanet fyrir stærri op.

Eiturefnalaust músakítti til að setja í rifur, sprungur og samskeyti þar sem nagdýr ættu annars greiða leið.  Músaheldur möskvi er 5x5 mm.  Í kíttinu er efni sem festist í tönnum nagdýra og þau hætta strax að naga.  Efnið er að öðru leyti skaðlaust.

Músaband fyrir veggklæðningu, sem er tenntur borði og settur er neðst í klæðningu og varnar músunum inngöngu, en tryggir útloftun klæðningar.  Hentar jafnt fyrir liggjandi og standandi klæðningu.
Sími 525 3000, thjonustuver@husasmidjan.is