20. apríl 2011
Batnandi afkoma
Nokkur viðsnúningur varð í rekstri Húsasmiðjunnar á árinu 2010 en bókfært tap félagsins var 144 milljónir króna í stað 815 milljóna króna taps árið á undan. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 333,5 milljónum króna. Heildareignir Húsasmiðjunnar í árslok 2010 námu 5,4 milljörðum króna og eigið fé var ríflega 1,4 milljarður króna.
Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri Húsasmiðjunnar: „Það er ljóst að viðsnúningur hefur orðið í rekstri félagsins þrátt fyrir nokkurn einskiptiskostnað vegna nauðsynlegra aðgerða á sl. ári. Rekstrarumhverfi okkar hefur ekki verið gott undanfarin misseri en samdráttur í þjóðarframleiðslu og stöðnun í byggingarstarfsemi gerir okkur erfitt fyrir. Starfsmenn Húsasmiðjunnar hafa lagt sig fram um að hagræða á öllum sviðum og við væntum viðunandi afkomu með auknum hagvexti og framkvæmdum í landinu á komandi tíð.”
Húsasmiðjan rekur 16 verslanir víða um land. Auk þess starfræktar félagið 9 verslanir Blómavals, Ískraft á 5 stöðum auk heildverslunarinnar H.G. Guðjónsson. Starfsmenn Húsasmiðjunnar og tengdra fyrirtækja eru um 520 talsins.
Framtakssjóður Íslands er nú aðaleigandi Húsasmiðjunnar eftir kaup hans á eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. sem formlega tóku gildi í febrúar á þessu ári.
Nánari upplýsingar:
Sigurður Arnar Sigurðsson forstjóri Húsasmiðjunnar, sími 525 3000.