Málun - vatnsmálning

Málun með vatnsmálningu

Að mála er fljótlegasta leiðin til þess að sjá breytingu á heimilinu, miklu fljótlegra en að flísaleggja eða parketleggja. Þó er ýmislegt sem þarf að skoða áður en maður byrjar.

Yfirleitt notum við vatnsþynnanlega málningu til innanhúss málunar. Hægt er að fá málningu sem er nánast lyktarlaus og ýrist sama og ekkert. Öll áhöld skolast með vatni á eftir.

Áhöldin eru nokkur sem til þarf :
Málningarpenslar, málningarrúllu, skaft á rúlluna (hægt að fá lengjanlegt skaft) tröppur, málningarbakka, málningarlímband, hornapúða? til að mála í kverkar (ekki nauðsynlegt) spartl, spartlspaða, sandpappír, rök tuska og kubbur fyrir sandpappír. Einnig er mjög gott að hafa plast til þess að leggja á gólfið, því að það vill oft sullast ?aðeins? á gólfið. Hægt er að fá stórt plast sem hylur gólf í meðalstóru herbergi (fáið upplýsingar hjá sölumönnum).

Veggurinn sem á að mála þarf að vera þurr, laus við nagla og sprungur.
Dragið nagla úr með klaufhamri og spartlið í götin.
Skrapið upp úr sprungum ef einhverjar eru og spartlið í þær líka. Látið spartlið þorna í ákveðinn tíma
(Sjá nánar leiðbeiningar á umbúðunum eða fáið upplýsingar hjá sölumönnum.

Þegar spartlið er þornað, setjið sandpappír á spýtukubb og pússið létt yfir þar til engin misfella finnst á veggnum. Stundum þarf að spartla tvisvar í sama farið ef að spartlið dregur sig of mikið. Þurrkið allt ryk af veggnum.

Ef að veggurinn er ómálaður (ber steinn) er nauðsynlegt að grunna hann fyrst með þar til gerðum grunni.( Aflið upplýsinga hjá sölumönnum).
Gips veggi er gott að grunna með olíugrunni.

Límið yfir alla gólflista og annað sem á ekki að mála.

Þá er það málningin.
Það eru til mismunandi
gljástig á málningu. Á baðherbergjum og eldhúsum er oftast notaður mikill gljái, en annarsstaðar töluvert minni. Upplýsingar um hvað er heppilegast hverju sinni fáið þið hjá hjá sölumönnum.

Ef það á að mála loft og veggi er best að byrja á loftinu. Byrjið á því að mála í horn og kverkar með pensli eða hornapúða. Rúllið síðan loftið. Notið hægar strokur til þess að málningin slettist ekki eða ýrist. Málið c.a fermeter í einu og reynið að fylgja blautu
röndinni svo að áferðin verði jöfn.

Ekki rennbleyta rúlluna svo að hún skauti í málningunni, heldur setjið mátulega mikið í hana til að hún rúlli. Rúllið síðan vegginn á sama hátt. Ef þið þurfið að hætta í miðjum klíðum, vefjið rúllunni í plastpoka og kreistið allt loft úr pokanum og límið síðan fyrir. Sama með penslana. Þá er minni hætta á að málningin harðni í áhöldunum.

Hreinsið öll áhöld vel eftir notkun, því að það er alveg hægt að nota þau aftur ef vel er farið með þau. Skolið með volgu vatni alla málningu úr bæði rúllu, penslum og bakkanum. Kreistið vatnið úr penslum og rúllu og látið þorna.

Sími 525 3000, thjonustuver@husasmidjan.is