English
Forsíða
Smátt letur
Venjulegt letur
Stórt letur
Sælureitur 2010
Um Húsasmiðjuna
Viðskiptareikningar
Þjónusta
Áhaldaleiga
Raftækjaverkstæði
Lyklasmíði
Timburverkstæði - plötusögun
Pantanir - söluráðgjöf
Heimsending
Ekkert mál - sjálfshjálp
Garðurinn
Sólpallurinn
Málning
Að mála - helstu atriði
Málun - vatnsmálning
Málun á flísum
Málningarpenslar
Hreinsun áhalda
Gljástig lita
Músavarnir
Gólfefni
Smíðar og viðgerðir
Verkfæri
Bæklingar
Málningarvefur
Verslanir
Timbursala
Vöruskrá
Forsíða
>
Þjónusta
>
Ekkert mál - sjálfshjálp
>
Málning
>
Málun á flísum
Ekkert mál - sjálfshjálp
Efnin sem til þarf eru:
sterkt hreinsiefni, sveppaeyðir til þess að hreinsa upp úr gömlum fúgum, naglabursti, flísagrunnur, flísalakk (olíumálning), sandpappír (120 og 180), málningarlímband, tuska, white spirit og plast til að hylja gólf og húsgögn.
Tæki og tól sem til þarf eru:
Tveir penslar, annar með gerfiefna hárum fyrir grunninn, hinn með náttúrulegum hárum fyrir lakkið (olíulakk). Einnig má líka nota rúllur með sömu eiginleika, önnur fyrir vatnsmálningu, hin fyrir olíulakk.
Áður en þið byrjið:
Berið út úr herberginu húsgögn og annað sem gæti slettst málning á. Breiðið plast á gólfið. Athugið hvort þarf að gera við flísar eða skipta um. Ef svo er, þá verður nýja fúgan að þorna í ca. viku áður en er málað yfir.
Hreinsið flísarnar af allri fitu og notið sveppaeyði (baðherbergi) ef þarf. Flísarnar verða að vera alveg þurrar áður en málað er.
Málun
Notið gerfihára pensil eða rúllu fyrir grunninn, sem er vatnsþynnanlegur. Reynið að mála alltaf í sömu áttina, ekki lárétt og svo lóðrétt. Ef það er málning á einhverri flís fyrir, skrapið hana af, því annars gæti grunnurinn bólgnað upp.
Látið grunninn þorna í nokkurn tíma. Sjá nánar leiðbeiningar á dósinni eða fáið upplýsingar hjá sölumönnum.
Þegar hann er orðinn þurr, strjúkið yfir penslaför og aðrar misfellur með 120 sandpappír. Strjúkið síðan yfir með rykfrírri tusku vættri í white spirit.
Ekki nota vatnspappír með vatni, þar sem grunnurinn er vatnsþynnanlegur.
Pakkið áhöldunum í plast á milli umferða og límið fyrir svo að ekki komist loft að áhöldunum. Málið síðan aðra umferð af grunni.
Þegar seinni umferðin er orðin þurr, strjúkið létt yfir með 160 sandpappír og þurrkið allt ryk af veggnum. Málið síðan með lakkinu sem fyrr, alltaf í sömu áttina. Reynið að hylja allan grunninn til þess að gera vatnshelt.
Látið lakkið þorna. Sjá nánar leiðbeiningar á dósinni eða fáið upplýsingar hjá sölumönnum.
Strjúkið síðan allar misfellur svo sem pensilför og annað yfir með 180 sandpappír og þurrkið yfir. Málið síðan seinni umferðina eins og áður.
Hreinsið áhöldin með white spirit og síðan með vatni og vefjið inn í pappír, tilbúin til næstu nota.
Hafa samband
|
Veftré
Húsasmiðjan, Holtagörðum, 104 Reykjavík, Sími 5253000, kennitala 5201710299, vsknúmer 11326