Saga Húsasmiðjunnar

 

Húsasmiðjan var stofnuð af Snorra Halldórssyni sem var fæddur í Magnússkógum í Dölum þann 31. júlí 1911.

Snorri var umsvifamikill byggingameistari og reisti ýmsar þekktar byggingar í Reykjavík, þar á meðal Þjóðminjasafnið og Háskólabíó. Húsasmiðjan hefur tekið miklum breytingum gegnum árin og er nú eitt af 30 stærstu fyrirtækjum landsins.
Verslanir Húsasmiðjunnar eru 31 talsins að meðtöldum dótturfyrirtækjum.
Húsasmiðjan hefur stóraukið þjónustu sína við landsbyggðina, með verslunum um land allt og einnig með verðstefnu sinni, en sama verð er í öllum verslunum Húsasmiðjunnar.


Eftirfarandi eru nokkrir punktar úr sögu Húsamiðjunnar:

1956
Snorri Halldórsson skráir Húsasmiðjuna sem einkafyrirtæki. Einingahúsaframleiðsla og timburvinnsla eru helstu viðfangsefni fyrirtækisins.

1959
Húsasmiðjan byrjar að selja timbur

1963
Framleiðsla sumarhúsa hefst.

1970
Plötuhús við Súðarvog tekið í notkun.

1971
Breytt í hlutafélag og nafngift í Húsasmiðjan hf.

1975
Verk hf, steypustöð og eininaverksmiðja keypt.

1982
Byggð hús við tvær götur í Grafarvogi sem var þróunarverkefni í húsagerð.

1984
Smávöruverslun opnuð í Súðarvogi.

1988
Verslun opnuð í Skútuvogi.

1991
Verslun og timbursala opnuð í Hafnarfirði.

1996
Verslun og timbursala opnuð í Keflavík.

1998
Húsasmiðjan sameinast SG á Selfossi og Hvolsvelli.
Húsasmiðjan kaupir Steinar hf. á Selfossi.
Húsasmiðjan opnar verslun í Grafarvogi.


1999
Sameining við byggingavöruverslun KEA á Akureyri, Siglufirði og Dalvík.
Húsasmiðjan tekur við rekstri Smiðjunnar á Húsavík.
Byggingarvörur Ármúla 18 keyptar og breytt í Húsasmiðjuverslun.
Rafiðnaðarverslunin Ískraft, sem þjónar m.a. rafverktökum, rafveitum, og verktökum, keypt. 2000
Heildverslunin H.G. Guðjónsson sem þjónar innréttingamarkaðinum, keypt í febrúar.
Húsasmiðjan skráð á Verðbréfaþing Íslands.
Húsasmiðjan kaupir Blómaval.
Fjárfest í timburframleiðslufyrirtækinu Natural AS í Eistlandi
Fjárfest í gluggaframleiðslufyrirtækinu Ispan Baltics í Lettlandi.
Fárfest í timbursölufyrirtækinu Lako AB í Lettlandi.
Húsasmiðjan kaupir stærsta hluta rekstur Árvíkur ehf.


2001
Byggingavöruverslunin Metró-Árval á Ísafirði keypt og opnuð verslun og timbursala í apríl.
Nýtt og mun stærra húsnæði á Selfossi tekið í notkun í maí.
Blómavalsverslun opnar í húsnæði Húsasmiðjunnar á Selfossi í maí.
Verslun og timbursala opnuð á Egilsstöðum í maí.
Þungavörulager við Kjalarvog opnaður í desember


2002
Byggingavöruverslunin Húsey í Vestmannaeyjum keypt og breytt í Húsasmiðju í maí.
Eigendaskipti urðu á félaginu í júní og í kjölfarið félagið tekið af Verðbréfaþingi.
Verslun í Skútuvogi breytt og bætt á haustmánuðum.


2003
Húsasmiðjuverslun opnuð á Akranesi

2004
Endurbætur fara fram á Húsasmiðjunni í Hafnarfirði
Húsasmiðjan kaupir rekstur KB byggingavara og opnar verslun undir merkjum Húsasmiðjunnar í Borgarnesi.

2005
Aðalskrifstofa Húsasmiðjunnar flytur úr Súðarvogi í Holtagarða


Eigendaskipti verða á Húsasmiðjunni og Steinn Logi Björnsson tekur við starfi Árna Haukssonar sem forstjóri.
Endurbætur fara fram á verslun Skútuvogi og Lónsbakka Akureyri


Glæsileg verslun Húsasmiðju og Blómavals opnar í Grafarholti

Húsasmiðjan Skútuvogi fær góðan nágranna þegar Blómaval opnar glæsilega verslun í Skútuvogi.

2006
Kaupfélag Héraðsbúa og Húsasmiðjan sameina núverandi rekstur á Egilsstöðum og á Reyðarfirði.
Nýtt 2500 fermetra stórhýsi reist á Egilsstöðum undir nýja miðstöð fyrir byggingarvörur, rafmagnsvörur og blóma- og gjafavörur.

Húsasmiðjan yfirtekur rekstur KASK Byggingarvara á Höfn í Hornafirði.

Nóvember 2007



Húsasmiðjan flytur í nýtt og glæsilegt 2500 fermetra verslunarhús á Egilsstöðum.  Þar er glæsileg bygginga- og heimilisvöruverslun og timbursala ásamt verslunum Blómavals og Ískraft.

Apríl 2008



Húsasmiðjan opnar nýja verslunarmiðstöð að Fitjum í Reykjanesbæ, með verslun með bygginga- og heimilsvörur, timbursölu og verslunum Blómavals og Ískraft.

Nóvember 2008



Húsasmiðjan flytur í nýtt verslunarhús að Dufþaksbraut 10a á Hvolsvelli, ný og stórglæsileg verslun ásamt timbursölu.

Mars 2009

        

Húsasmiðjan opnar glæsilega Timburmiðstöð í versluninni í Grafarholti. og samhliða er rekstri timbursölu hætt í Súðarvogi. Með tilkomu Timburmiðstöðvar Húsasmiðjunnar í Grafarholti er nú allt undir sama þaki: bygginga- og heimilisvöruverslun, timbursala, timburráðgjöf og tilboðsgerð, ásamt verslun Blómavals.

 

Október 2009

Vestia, eignarhaldsfélag í eigu Landsbankans, eignast Húsasmiðjuna.

Janúar 2010

Sigurður Arnar Sigurðsson tekur við starfi Steins Loga Björnssonar sem forstjóri Húsasmiðjunnar.

Haust 2010

Framtakssjóður Íslands festir kaup á Vestia og þar með Húsasmiðjunni.

Nóvember 2011

Húsasmiðjan í Hafnarfirði flytur í nýtt og betra húsnæði við Dalshraun 15. Með því er aðstaðan bætt til muna frá því sem var. Hægt er að bjóða upp á breiðara vöruúrval auk þess sem Blómaval hefur opnað í nýju versluninni.

Janúar 2012

Danska byggingavörufyrirtækið Bygma A/S kaupir Húsasmiðjuna.


Sími 525 3000, thjonustuver@husasmidjan.is