Verð og gæði við allra hæfi!
Lægsta lága verð
Húsasmiðjunnar
Ódýrustu vörurnar sem við bjóðum eru sérmerktar Lægsta lága verð Húsasmiðjunnar. Við
höfum farið um veröld víða til þess að finna vörur á lægsta verði sem
Húsasmiðjan býður. Þess vegna er þessi
vöruflokkur með verðvernd, þannig að ef þú finnur sömu vöru auglýsta
ódýrari annars staðar, endurgreiðum við mismuninn. Lestu allt um verðverndina hér að neðan!
Við mælum með
Í verðflokki sem við kjósum að kalla við mælum með – finnur þú
gæðavöru á góðu verði. Hér fara saman hagstætt verð og mikil gæði sem
við erum stolt og ánægð að geta boðið viðksiptavinum okkar. Hér getur þú líka
nýtt þér afsláttinn með Kjaraklúbbnum og gert þannig sérstaklega góð kaup.
Mestu gæði Húsasmiðjunnar
Verðflokkurinn mestu
gæði Húsasmiðjunnar er einkar
hagstæður fyrir iðnaðarmenn og alla sem gera miklar kröfum um gæði og endingu.
Í þessum verðflokki finnur þú vörur sem þola mikið álag og hafa reynst
viðskiptavinum okkar sérstaklega vel í gegnum tíðina. Að sjálfsögðu gildir Kjaraklúbbsafslátturinn
hér líka svo það borgar sig alltaf að verða skráður í Kjaraklúbbinn!

ÞÚ HJÁLPAR OKKUR AÐ HALDA LÆGSTA LÁGA VERÐI
HÚSASMIÐJUNNAR!
Húsasmiðjan býður
verðvernd á öllum vörum sem merktar eru „lægsta lága verð Húsasmiðjunnar“
VERÐVERNDIN er háð eftirfarandi skilmálum:
Húsasmiðjan býður VERÐVERND á vörum sem merktar eru „Lægsta
lága verð Húsasmiðjunnar“. Ef þú kaupir vöru af Húsasmiðjunni merktar „Lægsta
lága verðið“ í einhverri af verslunum Húsasmiðjunnar um land allt
og sérð síðan sömu vöru auglýsta á lægra verði annars staðar á Íslandi innan 20
daga frá kaupunum þá endurgreiðum við þér mismunin. Til viðbótar færðu frá
okkur 20% af verðmuninum fyrir að aðstoða okkur við að viðhalda samkeppnishæfu
verði í verslunum okkar.
Það eina sem þú þarft að gera er að hafa með þér reikning
frá Húsasmiðjunni sem sýnir endanlegt verð vörunnar sem þú keyptir ásamt
auglýsingu eða ananð sem staðfestir lægra verð á sömu vöru annarsstaðar. Við endurgreiðum þér þá verðmuninn og 20% af
mismuninum að auki ef þú staðgreiddir vöruna, annars færðu inneign hjá okkur
upp á sömu fjárhæð.
Athugið að Verðvernd á Lægsta lága veðri Húsasmiðjunnar
gildir ekki um aðrar vörur en þær sem merktar eru „Lægsta lága verð
Húsasmiðjunnar“, grófvörur, útsöluvörur, vörur sem boðnar eru á Internetinu og
vörur sem fela í sér aðra kaupskilmála. Verðvernding gildir eingöngu um vöru sem auglýst er á
endanlegu verði, gildir ekki um sérstakar tímabundnar útsölur samkeppnisaðila.
Eftirtaldir skilmálar gilda um verðvernd
Húsasmiðjunnar:
1. Verðvernd gildir í 20 daga eftir kaup á vörum sem merktar
eru „Lægsta lága verð Húsasmiðjunnar“
2. Verðvernd gildir eingöngu ef um sömu vöru er að ræða
(sama vörumerki, stærð o.s.frv). Ekki er
nægjanlegt að hún sé sambærileg . Verðvernd gildir ekki um grófvöru (s.s.
timbur, plötur, stál o.sfrv).
3. Umrædd vara verður að hafa verið auglýst hjá keppinauti
eftir að hún er keypt hjá Húsasmiðjunni
4. Varan verður að vera til á auglýstu lægra verði hjá
keppinauti þegar athugasemd er gerð hjá Húsasmiðjunni
5. Reikningi frá Húsasmiðjunni, sem sýnir endanlegt verð
vöru sem keypt er, skal framvísa í öllum tilfellum
6. Framvísa verður dagsettri auglýsingu frá keppinauti, sem
staðfestir lægra verð.
7. Húsasmiðjan endurgreiðir mismun á verði vörunnar og að auki 20% af þeim verðmun.
8. Verðmismun og aukagreiðslu greiðir Húsasmiðjan með
peningum hafi varan verið staðgreidd en með inneign á viðskiptareikning ef um er
að ræða reikningsviðskipti.
9. Verðvernd gildir ekki um vörur sem boðnar eru á
Internetinu, vörur sem fela í sér kaupauka, aðra kaupskilmála og vörur á tímabundnum útsölum
keppinauta.
10. Verðvernd gildir eingöngu um vöru sem auglýst er og
endanlegt verð kemur fram í auglýsingunni.