Í þessum stuttu brotum fara Örn og Guðjón í gegnum smíði á sumarhúsi frá upphafi til enda.
Byrjað er á undirlaginu og síðan er grindin reist. Því næst er þakið smíðað og einangrað.
Að lokum er svo gólfið lagt og vindklæðning og gluggar settir í.
Þessi myndbönd geta einnig nýst þeim er kaupa ósamsett gestahús og sumarhús frá Húsasmiðjunni.